Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023 Bændablaðið fékk til prufu nýja jarðýtu af gerðinni Caterpillar D11, eða Cat Ellefu. Þessi gripur flokkast til mjög stórra jarðýta, enda sú stærsta í fjöldaframleiðslu. Hún vegur 112 tonn, er 1.015 hestöfl og getur ýtt nálægt 40 rúmmetrum af efni. Nokkrar stærri jarðýtur hafa litið dagsins ljóss. Sú stærsta er 183 tonn og var sérsmíðuð á Ítalíu eftir pöntun Gaddafi, en var aldrei afhent eftir að viðskiptabönn voru sett á Líbýu á níunda áratugnum. Komatsu framleiddi rúmlega 50 eintök af D575 jarðýtum á árunum 1989 til 2012, en þær voru 131 tonn. Sú þriðja stærsta er vélin í þessum prufuakstri og er sú eina af áðurnefndum ýtum sem hinn almenni kaupandi getur verslað. Tönnin sjálf er 34,4 rúmmetrar, en getur flutt nálægt 40 rúmmetrum af möl í hverri ferð. Því þarf ekki nema nokkrar ferðir til að gera haug á stærð við lítið fell. Helsti sölupunkturinn á þessum jarðýtum er að þær ná að flytja mest efni á sem hagkvæmastan hátt. Þar sem afköst þessarar ýtu er á við tvær Caterpillar 10, er eldsneytiseyðslan á hvern rúmmetra umtalsvert minni. Stærð platar Þegar vélin er skoðuð að utan er erfitt að átta sig á hversu stórt tækið í rauninni er. Ef hún stendur í miðri malarnámu gæti þetta verið hvaða ýta sem er. Um leið og manneskja sést í návígi áttar maður sig á að þetta er ferlíki, en meðalhár maður er svipað langur og riftönnin. Hæð ýtunnar er 4,7 metrar, lengd með riftönn er 10,5 metrar og breidd tannar er 6,4 metrar. Þessi mál eru nokkurn veginn þau sömu og á 65 fermetra sumarbústað með svefnlofti, sem er hægt að kaupa hjá íslensku fyrirtæki sem selur einingahús.Rúmmál 12 strokka dísilvélarinnar eru 32,1 lítri, sem þýðir að hver stimpill er 2,7 lítrar! Eins og áður segir framleiðir vélin rúm þúsund hestöfl sem er beint út í sprokket að framan og aftan. Það má því segja að þessi ýta sé fjórhjóladrifin. Aðgengi með besta móti Ýtustjórar þurfa ekki að leggjast í áhættusamt príl til að komast um borð, því þessi er útbúin landgangi. Hann er látinn síga á jörðina með því að ýta á einn takka og er leikur einn að komast upp. Öflug handrið eru á stiganum og allt í kringum dekkið sem umlykur ökumannshúsið. Sjálft húsið er merkilega lítið – kannski einn og hálfur fermetri. Þar er rétt nóg pláss fyrir sæti og stjórntæki til beggja handa. Ólíkt flestum vinnuvélum, þá er ekkert stýri. Á gólfinu eru tvö fótstig, annað bremsa og hitt til að minnka inngjöf. Tveir stórir snertiskjáir eru í húsinu, annar beint fyrir framan ökumanninn og hinn til hliðar. Til hægri handar eru tveir stjórnpinnar, annar fyrir tönnina að framan og hinn fyrir riftönnina að aftan. Sá fyrrnefndi er sá sem notaður er mest og er greinilegt að Caterpillar hefur vandað sig sérstaklega við að móta hann þannig að hann passi fullkomlega í krepptan lófann. Virkni hans er á margan hátt sambærileg og á flestum ámoksturstækjum. Stjórnbúnaðurinn fyrir riftönnina er fast handfang með tveimur stórum veltirofum. Á vinstri hönd eru stýripinnar til að stjórna akstursstefnu. Með þumlinum er valið hvort vélin sé í hlutlausum, eða fari fram eða aftur. Tveir flipar eru svo fyrir framan handfangið sem kúpla frá hvor sínu beltinu, til að beygja til hægri eða vinstri. Þeir eru fisléttir og þarf rétt að nota fingurgómana til að hreyfa við þeim. Nokkuð harðir rykkir koma þegar beltunum er kúplað, eða ef skipt er snöggt á milli þess að fara fram eða aftur. Ekki er ætlast til að beygt sé á meðan verið er að ýta eða rippa en vanir ýtumenn geta tekið beygjur með því að beita tönninni. Lúxussæti Um leið og sest er niður finnst að allt er af bestu gæðum og vel skrúfað saman. Stjórntækin eru mjög lógísk og tekur örfáar mínútur að átta sig hvað gerir hvað. Sætið er ekki síðra en hinn besti hægindastóll og eru fjölmargar stillingar svo ýtumenn af öllum stærðum komist fyrir. Jafnframt er hægt að stilla báða armpúðana, þann vinstri með rafmagni og þann hægri handvirkt. Loftpúðafjöðrun er í sætinu og hreyfist það upp og niður – en í þessu tilfelli hefði verið viðeigandi að hafa fjöðrun til allra átta, eins og er í betri dráttarvélum, enda vinna ýtur oft í miklum veltingi. Þó Ellefan sé tryllitæki þá verður notandinn lítið var við utanaðkomandi áreiti. Ökumannshúsið er sérlega vel einangrað þannig að varla heyrist í vélinni. Helsti hávaðinn er ískrið í beltunum, sem berst þó ekki mikið inn í húsið. Útsýni takmarkað Sjálft húsið er alveg loftþétt og dregur öflug loftkælingin loftið í gegnum ryksíur. Þar helst yfirþrýstingur séu allir gluggar lokaðir, sem lágmarkar aðgang ryks og sóts. Vanir ýtumenn tjáðu undirrituðum að ökumannshús Ellefunnar sé sérlega góður staður til að vera á og þreytan í lok dags sé minni en þegar unnið er á vélum frá helstu samkeppnisaðilum. Útsýnið fram er nokkuð takmarkað. Gluggarnir eru litlir og á milli þeirra eru þykkir gluggapóstar. Sjálf tönnin skyggir alveg á það sem er beint fyrir framan vélina, en hægt er að sjá neðri horn tannarinnar framan við beltin. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvort ýtt sé heilu hlassi, eða hvort tönnin rétt strjúkist yfir yfirborðið. Vélin í þessum prufuakstri er útbúin myndavélakerfi sem á að hjálpa til, en myndin er það kornuð að erfitt er að sjá hvað er í gangi. Útsýnið afturábak er ekki mikið betra, en undirritaður var alltaf í leit að hliðarspeglum – sem eru ekki til staðar. Sætið snýr nokkrar gráður til hægri, þannig að ýtustjórinn þarf ekki að vinda eins mikið upp á höfuðið. Óheft sjónlína er á odd riftannarinnar. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Riftönnin er á stærð við mann. Hér sést ýtustjórinn Sigfús G. Öfjörð, sem er meðalmaður á hæð. Myndir / ÁL Ef þú ætlar að versla þér jarðýtu þá færðu enga stærri en Caterpillar D11. Þó vélin sé ferlíki á stærð við 65 fermetra hús, þá er hún afar létt í notkun. Öflugur landgangur gefur gott aðgengi. Vökvamótorar slaka honum niður. Ökumannshúsið er góður staður til að vera á. Mikil hljóðeinangrun gerir aðstöðuna vistlega. Sætið fjaðrar og er stillanlegt. Til sölu 68,5m2 iðnaðarbil til afhendingar strax í Breiðamýri 3, Selfossi. Allar nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson, löggiltur fasteignasali S: 896 9565, loftur@husfasteign.is – Prufuakstur á Caterpillar D11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.