Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023 Fyrsta tilfellið um riðuveiki í sauðfé í Miðfjarðarhólfi var staðfest á Bergsstöðum í Miðfirði í byrjun apríl. Þar með var ljóst að rúmlega 26 ára markviss og metnaðarfull ræktun bændanna var komin á leiðarenda. Ábúendurnir, þau Elín Anna Skúladóttir og Ari G. Guðmundsson, keyptu jörðina um áramótin 1996– 1997. „Ég er uppalin hérna og við tókum við af foreldrum mínum sem voru með blandað bú, það er kýr, kindur og hross,“ segir Elín. Tvöföldun á fjárfjölda „Þá voru hér einhverjar 320–330 kindur og við ákváðum strax að ráðast í breytingar og stækka hjörðina, það fyrsta sem við gerðum var að innrétta hlöðuna sem fjárhús svo við gætum fjölgað. Svo byggjum við fjárhús árið 2001 og nýjasta byggingin er frá 2020. Við lögðum mikinn metnað og vinnu í ræktunarstarfið og reyndum að keppast við að gera betur frá ári til árs. Við vorum komin í um 700 fjár þegar riðutilfelli var staðfest hér með þeim afleiðingum að það þurfti að skera allt niður núna í byrjun apríl. Það má segja að aðstæður hafi verið orðnar nokkuð þægilegar, það er góður bústofn, góð vinnuaðstaða og búin að endurrækta öll tún og bæta við mikilli ræktun,“ segir Ari. Vonuðust eftir að um fjárkláða væri að ræða Þau segjast hafa tekið eftir einkennum hjá einni kind fyrst, en svo fljótlega í öðrum tveimur. Þetta hafi gerst á um 10 dögum að riðuveiki var svo staðfest. „Þá fór nú um okkur þegar við gerðum okkur grein fyrir því hverju við gætum verið að lenda í. Maður gerði sér alls ekki grein fyrir því til að byrja með að þetta væri riða, þetta var mikill kláði, þannig að við vorum að vona að þetta væri bara þessi fjárkláði því þær voru spikfeitar og heilbrigðar að sjá, ekki þessi einkenni sem maður hefði lesið og heyrt um. En eitthvað fannst okkur einkennilegt við þetta og höfðum því samband við héraðsdýralækni,“ segir Elín. Gjafirnar erfiðar um páskana Þau segja að fjölskyldan hafi verið alveg dofin fyrstu dagana eftir að þetta var staðfest og þau áttuðu sig ekki strax á því hvað þetta var mikill skellur – ekki bara fyrir þau heldur Miðfjarðarhólfið í heild sinni. „Auðvitað hefur þetta ferli allt verið mjög erfitt, en þó var líðanin verst þessa páskadaga sem við þurftum að gefa fénu sem eftir var – vitandi að það væri að fara. Fyrri hópurinn fór á föstudaginn langa og sá síðari annan í páskum. Og enn verra var reyndar að horfa á eftir fénu frá nágrönnum okkar á Urriðaá,“ segir Ari. Þar var svo einnig ráðist í niðurskurð skömmu síðar eftir að riðuveiki var staðfest í einni á sem bændurnir á Bergsstöðum höfðu gefið heimasætunni á Urriðaá árið 2020. Samstaða í sveitinni Þau segjast hafa fundið fyrir mikilli samstöðu í sveitinni, bæði með þeim og bændunum á Urriðaá. „Við höfðum í raun vonast eftir að það væri hægt að hlífa þeim við niðurskurðinum þar sem við töldum að það væri jafnvel ekki fleira fé þar smitað en bara þessi sem kom frá okkur,“ segir Elín. „Í bréfi sem var sent héðan úr sveitinni til yfirdýralæknis, sem sveitungar okkar skrifuðu undir, var óskað eftir því að það yrði ekki skorið niður þar – því við óttuðumst ekki að um fleiri riðusmit væri að ræða þar, sem komið hefur svo á daginn.“ Það var þá bæði af því að ljóst var að þessi niðurskurðaraðferð skilaði ekki almennilegum árangri og svo að það var vitað að nú væri farið að rækta upp fjárstofna með verndandi arfgerðir. „Það hefði vel verið hægt að stíga inn í ferlið og breyta reglum – það hefði verið hægt að prófa ýmsar aðrar leiðir þarna á Urriðaá, og teljum við að vinnureglur sem farið er eftir í dag séu barns síns tíma. Fjárstofninn á Urriðaá var einn sá flottasti á landinu og vildu allir bændur fá að sjá hann og eignast gripi frá þeim – enda voru gripir frá þeim eftirsóknarverðir,“ bætir hún við. Gerð, frjósemi og mjólkurlagni Þau telja að sig hafa náð ágætum árangri í ræktunarstarfinu, en Bergsstaðir hafa verið ofarlega á flestum uppgjörslistum skýrslu- haldsins í sauðfjárrækt á undan- förnum árum. „Við höfum reynt að vanda okkur og einbeitt okkur að tilteknum þáttum ræktunarinnar til að ná árangri; gerð, frjósemi og mjólkurlagni. Við vorum komin á nokkuð góðan stað í flestum þáttum ræktunar nema í ullargæðum. Svo eru það atriði í búskapnum sem ekki má vanmeta, eins og að vera með góð hey á álagstímum sem eru fengitími og sauðburður, eins er mjög mikilvægt að hafa gott pláss og góða vinnuaðstöðu, enda ekki vanþörf á verandi með 100 til 140 fleirlembur á hverju ári að meðaltali og það tekur pláss,“ segir Ari. Elín tekur undir þetta og leggur áherslu á að þetta sé þeirra vinna. „Viljum við ekki öll hafa snyrtilegt, þægilegt og gaman í vinnunni? Við eyðum mest öllum okkar tíma í fjárhúsunum og við búskaparstörf sem er dásamlegt – og lífið snýst allt árið um að gera og klára fyrir sauðburð og fyrir smalamennskur. Við viljum ekki trúa því að ráðamenn og landsmenn vilji ekki hafa íslenskan sauðfjárstofn í landinu.“ Tilfinningalegt uppnám Þau segjast ekki hafa fyllst vonleysi við þessi ótíðindi um riðusmit í hjörðinni þeirra, þó vonbrigðin hafi vissulega verið mikil. Að sögn Ara töluðu þau um að taka ekki einhverjar skyndiákvarðanir í tilfinningalegu uppnámi. „Það var hræðilega erfitt að sjá á eftir kindunum sínum sem áttu nokkrar vikur í burð, hlaupa upp á sláturbílinn. Flestar þeirra voru einstakir karakterar og miklir vinir okkar og maður sá í augum þeirra hvað þær voru óttaslegnar á þessari ringulreið. Við urðum reið og það kom upp uppgjafartónn í okkur eftir að við fengum fyrstu drög að afurðatjónsbótum. Eins þegar gámarnir með bú- stofninum frá Urriðaá voru keyrðir um sveitina fram og til baka meðan verið var að finna urðunarstað – og svo þegar við heyrðum upphæðina sem var borguð fyrir það. Það lítur út fyrir okkur að þetta sé bara leið til að fækka fé í landinu og bændum, því þetta er ekki bændum bjóðandi,“ segir Elín. Vonandi síðasti niðurskurðurinn í landinu Þau standa enn í samningsferli við ríkið um bætur en gera ráð fyrir að það vanti helmingi meira en þeim er boðið miðað við núverandi forsendur. Þau telja það vera dapurlega stöðu að bjóðast ekki fullar bætur fyrir það sem þau hafa misst og var tekið af þeim, til að geta byggt upp sambærilegan stofn. Ari telur að með árunum verði svo enn dýrara að byggja upp stofn. „Þessir gripir með verndandi arfgerðir verða auðvitað bara dýrari. Maður skilur bara ekki hvað allt gengur hægt í að breyta þessum áherslum varðandi riðuniðurskurð og hvernig á að ná árangri í baráttunni við hana. Þetta virkar núna bara eins og starfslokasamningur ríkisins við bændur,“ segir hann. Á liðlega 40 árum hafa rúmlega 850 hjarðir verið skornar niður á Íslandi, með meira en 200 þúsund fjár. Mörkuð var stefna af hálfu stjórnvalda árið 1986, þegar vitað var um riðu á um 100 bæjum, að freista þess að útrýma veikinni úr landinu með skipulögðum niðurskurði á öllum bæjum þar sem riðan var staðfest. Þessari stefnu hefur verið fylgt síðan. Árið 2020 voru staðfest riðutilfelli á sex bæjum, annars vegar í Húna- og Skagahólfi og hins vegar í Tröllaskagahólfi. Síðan bættust við tilfelli á þremur bæjum í Vatnsneshólfi og Húna- og Skagahólfi árið 2021 – og nú nýjast í tveimur hjörðum í Miðfjarðarhólfi. Samtals hefur verið skorið niður um 6.500 fjár á þeim tíma. Í kjölfar tilfellanna á Norðurlandi árið 2020 var Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir fengin til að ráðast í endurskoðun á reglum sem varða viðbrögð við riðuveiki. Hún skilað drögum til matvælaráðu neytisins í desember 2021 og nú nýlega tilkynnti matvælaráðherra um breytta nálgun við útrýmingu á riðuveiki með því að beita riðuþolnum arfgerðum. Ákall bænda er nú hávært um nauðsyn þess að breyta ekki aðeins nálgun við útrým ingu á riðuveiki í sauðfé heldur einnig þeim bótaréttindum sem bændum standa til boða við þær aðstæður þegar þeir eru sviptir sínum bústofni, ævistarfi og ástríðu. Reglu gerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar er að stofni til frá 2001 og er samdóma álit þeirra bænda sem hér er rætt við á næstu síðum – og lentu í niðurskurði á árunum 2020 til 2023 – að hún sé úrelt. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Mikil vonbrigði en ekki vonleysi – Vonast til að niðurskurðurinn á Urriðaá hafi verið síðasti niðurskurðurinn Bergsstaðir í Miðfirði er fyrsti bærinn í Miðfjarðarhólfi þar sem riða í sauðfé greinist. Myndir / smh Elín Anna Skúladóttir og Ari G. Guðmundsson voru afar farsæl í sinni ræktun á Bergsstöðum en sáu á eftir hjörðinni sinni í byrjun apríl til förgunar. Eftirmál riðuveiki Í DEIGLUNNI Það lítur út fyrir okkur að þetta sé bara leið til að fækka fé í landinu og bændum, því þetta er ekki bændum bjóðandi ...“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.