Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Nú er að fara af stað íslenskt rann-
sóknarverkefni þar sem kanna á
hvort unnt sé að nota viðarkol, sem
eru ein gerð lífkola, í landbúnaði
hérlendis með því að plægja þau
í ræktarlönd og ná þannig fram
minnkaðri áburðarnotkun í jarð-
rækt ásamt því að bæta gæði og
heilsu jarðvegsins.
Með viðarkolagerð mætti nýta
smáan grisjunarvið hinna ungu skóga
Íslands, sem nú fer að mestu leyti
í kurl og framleiðslu trjáperlu-
undirburðar fyrir landbúnað,
til að bæta jarðvegsgæði og til
kolefnisbindingar.
Viðarkol í landbúnaði eru ekki
ný af nálinni heldur hafa verið
notuð í jarðrækt langt aftur í aldir.
Jarðvegurinn í Úkraínu og Amason-
skógunum í Suður-Ameríku er
einhver sá frjósamasti á jörðinni.
Svört moldin er hlaðin lífkolum
sem eru orðin mörg þúsund ára
gömul og sjá gróðrinum fyrir
nærfellt óendanlegri uppsprettu af
næringarefnum.
Lárus Heiðarsson, sérfræðingur
hjá Skógrækt ríkisins á Mógilsá,
segir Íslendinga vera að ranka við
sér varðandi möguleika viðarkola
en þau hafi lengi verið notuð annars
staðar og þá einkum í Suður-Evrópu.
Norðurhluti Evrópu og Skandinavía
séu að taka við sér og þar sé einkum
horft til nýtingar kola í landbúnaði.
„Kolin eru dálítið eins og
svampur,“ útskýrir Lárus. „Þú þarft
að plægja þau eða koma þeim með
einhverjum hætti ofan í jörðina og
þau munu passa upp á næringarefni,
vatn og fleira. Ef er mjög þurrt þá
hefur gróðurinn aðgang að því vatni
sem kolin hafa sogið í sig og svo eru
þau jarðvegsbætandi.“
Minni áburðarþörf
Fyrirtækið Tandrabretti, sem
framleiðir vörubretti og vinnur
trjáperlur úr smáviði, kom hug-
myndinni á framfæri við
Skógræktina. „Við erum svo í
sambandi við Landbúnaðarháskóla
Íslands hvað varðar jarðvegs-
tilraunir,“ segir Lárus.
Á dögunum voru sett kol
í tilraunareiti í Vallanesi og á
Gíslastöðum á Fljótsdalshéraði.
Sett var mismunandi magn af
kolum og breytilegt magn áburðar
í reitina. Á Gíslastöðum verður sáð
vallarfoxgrasi í rannsóknarreitinn
og í Vallanesi byggi en þar er lífræn
ræktun undir merkjum Móður
jarðar. Þá er búið að senda viðarkol
á Hvanneyri og stendur til að setja
einnig út tilraun þar.
Viðarbrennsluofn er að Víði-
völlum í Fljótsdal. Ofninn afkastar
einni tunnu viðar á dag, þar sem í
komast 1-2 rúmmetrar af ferskum
smáviði. Einn rúmmetri verður
við brennslu u.þ.b. 200 kg af
viðarkolum. Sett voru mest 40
tonn af viðarkolum á hektara í
tilraunareitina og einnig minna,
að sögn Lárusar. Bæði var kolum
blandað við skít og þannig sett út
en einnig voru kolin sett beint á jörð
og tilbúinn áburður yfir.
„Rannsóknin snýr að því að setja
lífkolin í jörð, hversu mikið þarf að
setja af þeim og athuga hver áhrifin
verða. Það sem við vonumst eftir
að sjá er að hægt verði að minnka
áburðarnotkun í hefðbundinni
ræktun, hvort sem um er að ræða
tún eða kornrækt,“ segir Lárus.
Ekki er búist við miklu eftir fyrsta
sumarið í rannsókninni en upp frá
því gætu jákvæð áhrif viðarkolanna
farið að koma í ljós ár frá ári.
Kolefnisbinding
meðal margra kosta
Jákvæð áhrif af því að setja
viðarkol í jörð gætu ekki eingöngu
verið jarðvegsbætandi heldur er
einnig um að ræða umtalsverða
kolefnisbindingu. „Þegar búið er
að kola viðinn eru viðarkubbarnir
eiginlega hreint kolefni,“ segir
Lárus. „Þeir eldast í mörg þúsund
ár í jarðvegi og það er verið á fullu
núna niðri í Evrópu að skoða hvort
menn geti nýtt þetta og fengið
kolefniseiningar fyrir að grafa
kolin ofan í jarðveginn. Það er þó
ekki viðurkennd aðferð og enn í
skoðun. Það gæti mögulega orðið
góður kostur að taka kol og fá
borgað fyrir að plægja þau ofan í
jarðveginn sem kolefnisbindingu og
svo fengist þar að auki ávinningur
af því að þurfa minni áburð,“ bætir
Lárus við. Hann segir jafnframt að
ef slíkt raungerðist yrði það frábært
fyrir landbúnað, hvort sem væri
hérlendis eða erlendis.
Lárus bendir á að notkunar-
möguleikar lífkola séu miklu
víðtækari en til jarðabóta. Þau hafi til
dæmis verið sett í byggingarsteypu
til bindingar. Þá virðast kolin eyða
lykt og einn möguleikinn væri því
að setja kol jafnóðum í haughús
til lyktareyðingar. Kolin sjúgi þá
næringuna úr skítnum, og honum,
ásamt kolunum, sé svo árlega
dreift á tún eða þetta plægt niður til
jarðvegsbóta. Þá hafi kolum verið
blandað í fóður fyrir nautgripi og
það minnki metanlosun frá þeim.
Notkunarmöguleikarnir virðast því
mýmargir.
Ógrynni af smáefni
Við til kolagerðar þarf að taka úr
sjálfbærum skógum og segir Lárus
alla íslenska skóga sjálfbæra. „Í
þetta eru menn að nota eitthvað sem
væri ekki hægt að nota í neitt annað
nema hugsanlega kurl.
Kannski er hægt að gera meiri
verðmæti úr þeim viði ef þetta
hefur jarðvegsbætandi áhrif. Þá
er það stór plús fyrir ræktendur.
Þarna er því mögulega kominn nýr
notkunarmöguleiki á grisjunarefni
sem nýtist ekki í neitt annað.“
Tandrabretti hafa, að sögn
Lárusar, verið að taka allan smávið
sem fyrirtækið kemst yfir og unnið
úr því undirburð, svokallaðar
viðarperlur. „Það hefur verið
notkunin fyrir þetta en hugsanlega
er þarna kominn annar möguleiki.“
Á Íslandi séu allir skógar enn litlir
og ógrynni af smáefni í þeim. Eftir
því sem skógarnir eldast fari svo að
koma sverari, stærri og verðmeiri
afurðir.
Sótt var um styrk fyrir verk-
efninu í svokallaðan Lóusjóð, sem
veitir nýsköpunarstyrki fyrir
landsbyggðina. Lárus segir ekki
komið svar við styrkbeiðninni
en verkefnið standi og falli með
því. „Við munum taka mikið af
jarðvegssýnum og ætlum að gera
efnagreiningar á uppskerunni.
Það kostar hins vegar svo mikið
að hvorki Landbúnaðarháskólinn
né Skógræktin standa undir þeim
kostnaði. Vonandi fáum við því
styrk til að geta haldið rannsókninni
áfram næstu ár.“
Um sé að ræða langtímaverkefni
og stefnt á mælingar og jarðvegssýna-
greiningar hið minnsta næstu þrjú
til fimm ár, og vonandi lengur.
„Langtímarannsóknir og vöktun
segja manni mjög mikið. Það er
auðvitað dýrt að halda slíku úti en
þannig fáum við langmestu gögnin
til að segja okkur söguna og þá
þarf ekki að vera að geta mikið í
eyðurnar,“ segir hann.
Bjartsýnn um niðurstöður
Eymundur Magnússon, bóndi
í Vallanesi, segist telja að rann-
sóknin eigi eftir að skila mjög
jákvæðum niðurstöðum varðandi
jarðvegsbætur. „Ég vildi endilega
fá þessa tilraun í landið hjá mér
˗ og bara sem mest af kolum,“
segir hann og ætlar í sumar að
blanda viðarkolum í safnhaug og
leyfa þeim að gerjast í haugnum
í einhvern tíma áður en moltan
verður borin á landið.
„Ég hef fulla trú á rannsóknar-
verkefninu og er búinn að gefa
mér góða niðurstöðu fyrir fram,
þótt maður eigi náttúrlega aldrei
að gera slíkt.“
LÍF&STARF
ÞÓR HF
thor.is
Keðjusagir
fyrir stór og lítil verk
Landbætur:
Gæti aukið gæði jarðvegs til langframa
– Ýta úr vör rannsókn á notkun viðarkola til að bæta gæði jarðvegs í landbúnaði
Lárus Heiðarsson, sérfræðingur á Mógilsá, ásamt sérlegum aðstoðarmanni
sínum, Birni Sturlaugi Lárussyni, við tilraunasvæðið í Vallanesi.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Hér má sjá viðarkolin í stórum sekk en mismunandi magn kola og áburðar
var sett í hvern tilraunareit. Myndir / Eymundur Magnússon