Bændablaðið - 11.05.2023, Qupperneq 32

Bændablaðið - 11.05.2023, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 Nú er að fara af stað íslenskt rann- sóknarverkefni þar sem kanna á hvort unnt sé að nota viðarkol, sem eru ein gerð lífkola, í landbúnaði hérlendis með því að plægja þau í ræktarlönd og ná þannig fram minnkaðri áburðarnotkun í jarð- rækt ásamt því að bæta gæði og heilsu jarðvegsins. Með viðarkolagerð mætti nýta smáan grisjunarvið hinna ungu skóga Íslands, sem nú fer að mestu leyti í kurl og framleiðslu trjáperlu- undirburðar fyrir landbúnað, til að bæta jarðvegsgæði og til kolefnisbindingar. Viðarkol í landbúnaði eru ekki ný af nálinni heldur hafa verið notuð í jarðrækt langt aftur í aldir. Jarðvegurinn í Úkraínu og Amason- skógunum í Suður-Ameríku er einhver sá frjósamasti á jörðinni. Svört moldin er hlaðin lífkolum sem eru orðin mörg þúsund ára gömul og sjá gróðrinum fyrir nærfellt óendanlegri uppsprettu af næringarefnum. Lárus Heiðarsson, sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins á Mógilsá, segir Íslendinga vera að ranka við sér varðandi möguleika viðarkola en þau hafi lengi verið notuð annars staðar og þá einkum í Suður-Evrópu. Norðurhluti Evrópu og Skandinavía séu að taka við sér og þar sé einkum horft til nýtingar kola í landbúnaði. „Kolin eru dálítið eins og svampur,“ útskýrir Lárus. „Þú þarft að plægja þau eða koma þeim með einhverjum hætti ofan í jörðina og þau munu passa upp á næringarefni, vatn og fleira. Ef er mjög þurrt þá hefur gróðurinn aðgang að því vatni sem kolin hafa sogið í sig og svo eru þau jarðvegsbætandi.“ Minni áburðarþörf Fyrirtækið Tandrabretti, sem framleiðir vörubretti og vinnur trjáperlur úr smáviði, kom hug- myndinni á framfæri við Skógræktina. „Við erum svo í sambandi við Landbúnaðarháskóla Íslands hvað varðar jarðvegs- tilraunir,“ segir Lárus. Á dögunum voru sett kol í tilraunareiti í Vallanesi og á Gíslastöðum á Fljótsdalshéraði. Sett var mismunandi magn af kolum og breytilegt magn áburðar í reitina. Á Gíslastöðum verður sáð vallarfoxgrasi í rannsóknarreitinn og í Vallanesi byggi en þar er lífræn ræktun undir merkjum Móður jarðar. Þá er búið að senda viðarkol á Hvanneyri og stendur til að setja einnig út tilraun þar. Viðarbrennsluofn er að Víði- völlum í Fljótsdal. Ofninn afkastar einni tunnu viðar á dag, þar sem í komast 1-2 rúmmetrar af ferskum smáviði. Einn rúmmetri verður við brennslu u.þ.b. 200 kg af viðarkolum. Sett voru mest 40 tonn af viðarkolum á hektara í tilraunareitina og einnig minna, að sögn Lárusar. Bæði var kolum blandað við skít og þannig sett út en einnig voru kolin sett beint á jörð og tilbúinn áburður yfir. „Rannsóknin snýr að því að setja lífkolin í jörð, hversu mikið þarf að setja af þeim og athuga hver áhrifin verða. Það sem við vonumst eftir að sjá er að hægt verði að minnka áburðarnotkun í hefðbundinni ræktun, hvort sem um er að ræða tún eða kornrækt,“ segir Lárus. Ekki er búist við miklu eftir fyrsta sumarið í rannsókninni en upp frá því gætu jákvæð áhrif viðarkolanna farið að koma í ljós ár frá ári. Kolefnisbinding meðal margra kosta Jákvæð áhrif af því að setja viðarkol í jörð gætu ekki eingöngu verið jarðvegsbætandi heldur er einnig um að ræða umtalsverða kolefnisbindingu. „Þegar búið er að kola viðinn eru viðarkubbarnir eiginlega hreint kolefni,“ segir Lárus. „Þeir eldast í mörg þúsund ár í jarðvegi og það er verið á fullu núna niðri í Evrópu að skoða hvort menn geti nýtt þetta og fengið kolefniseiningar fyrir að grafa kolin ofan í jarðveginn. Það er þó ekki viðurkennd aðferð og enn í skoðun. Það gæti mögulega orðið góður kostur að taka kol og fá borgað fyrir að plægja þau ofan í jarðveginn sem kolefnisbindingu og svo fengist þar að auki ávinningur af því að þurfa minni áburð,“ bætir Lárus við. Hann segir jafnframt að ef slíkt raungerðist yrði það frábært fyrir landbúnað, hvort sem væri hérlendis eða erlendis. Lárus bendir á að notkunar- möguleikar lífkola séu miklu víðtækari en til jarðabóta. Þau hafi til dæmis verið sett í byggingarsteypu til bindingar. Þá virðast kolin eyða lykt og einn möguleikinn væri því að setja kol jafnóðum í haughús til lyktareyðingar. Kolin sjúgi þá næringuna úr skítnum, og honum, ásamt kolunum, sé svo árlega dreift á tún eða þetta plægt niður til jarðvegsbóta. Þá hafi kolum verið blandað í fóður fyrir nautgripi og það minnki metanlosun frá þeim. Notkunarmöguleikarnir virðast því mýmargir. Ógrynni af smáefni Við til kolagerðar þarf að taka úr sjálfbærum skógum og segir Lárus alla íslenska skóga sjálfbæra. „Í þetta eru menn að nota eitthvað sem væri ekki hægt að nota í neitt annað nema hugsanlega kurl. Kannski er hægt að gera meiri verðmæti úr þeim viði ef þetta hefur jarðvegsbætandi áhrif. Þá er það stór plús fyrir ræktendur. Þarna er því mögulega kominn nýr notkunarmöguleiki á grisjunarefni sem nýtist ekki í neitt annað.“ Tandrabretti hafa, að sögn Lárusar, verið að taka allan smávið sem fyrirtækið kemst yfir og unnið úr því undirburð, svokallaðar viðarperlur. „Það hefur verið notkunin fyrir þetta en hugsanlega er þarna kominn annar möguleiki.“ Á Íslandi séu allir skógar enn litlir og ógrynni af smáefni í þeim. Eftir því sem skógarnir eldast fari svo að koma sverari, stærri og verðmeiri afurðir. Sótt var um styrk fyrir verk- efninu í svokallaðan Lóusjóð, sem veitir nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Lárus segir ekki komið svar við styrkbeiðninni en verkefnið standi og falli með því. „Við munum taka mikið af jarðvegssýnum og ætlum að gera efnagreiningar á uppskerunni. Það kostar hins vegar svo mikið að hvorki Landbúnaðarháskólinn né Skógræktin standa undir þeim kostnaði. Vonandi fáum við því styrk til að geta haldið rannsókninni áfram næstu ár.“ Um sé að ræða langtímaverkefni og stefnt á mælingar og jarðvegssýna- greiningar hið minnsta næstu þrjú til fimm ár, og vonandi lengur. „Langtímarannsóknir og vöktun segja manni mjög mikið. Það er auðvitað dýrt að halda slíku úti en þannig fáum við langmestu gögnin til að segja okkur söguna og þá þarf ekki að vera að geta mikið í eyðurnar,“ segir hann. Bjartsýnn um niðurstöður Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi, segist telja að rann- sóknin eigi eftir að skila mjög jákvæðum niðurstöðum varðandi jarðvegsbætur. „Ég vildi endilega fá þessa tilraun í landið hjá mér ˗ og bara sem mest af kolum,“ segir hann og ætlar í sumar að blanda viðarkolum í safnhaug og leyfa þeim að gerjast í haugnum í einhvern tíma áður en moltan verður borin á landið. „Ég hef fulla trú á rannsóknar- verkefninu og er búinn að gefa mér góða niðurstöðu fyrir fram, þótt maður eigi náttúrlega aldrei að gera slíkt.“ LÍF&STARF ÞÓR HF thor.is Keðjusagir fyrir stór og lítil verk Landbætur: Gæti aukið gæði jarðvegs til langframa – Ýta úr vör rannsókn á notkun viðarkola til að bæta gæði jarðvegs í landbúnaði Lárus Heiðarsson, sérfræðingur á Mógilsá, ásamt sérlegum aðstoðarmanni sínum, Birni Sturlaugi Lárussyni, við tilraunasvæðið í Vallanesi. Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is Hér má sjá viðarkolin í stórum sekk en mismunandi magn kola og áburðar var sett í hvern tilraunareit. Myndir / Eymundur Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.