Bændablaðið - 11.05.2023, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Kristján og Kjartan
eru ekki snjallmenni
á netinu
Hringdu í vini og fáðu tilboð hjá fyrirtækjaþjónustu Olís,
í síma 515 1100, eða á olis.is.
Fyrirtækjaþjónusta Olís
Alvöru fólk með alvöru þekkingu og reynslu
Þeir eru til í alvörunni og vita allt um rafgeyma fyrir
landbúnaðartæki – og almennt flest um vörur fyrir tæki
og fyrirtæki.
STEINHELLA 4, HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 837 7750 INFO@BILXTRA.IS
kr425,000
KERRUR Á HAGSTÆÐUM VERÐUM!
BILXTRA.IS
kr950,000
kr,000
kr1,450,000
Grasflötin tamin í
eitt skipti fyrir öll
Garðyrkjufélag Íslands stendur
fyrir fræðslufundi þann 16. maí
þar sem farið verður yfir hvernig
ná á grasflötum fallegum og
heilbrigðum „í eitt skipti fyrir
öll“ eins og segir á vef félagsins,
gardurinn.is.
Bjarni Þór Hannesson, íþrótta
yfir borðstæknifræðingur og
grasagúru svonefndur, mun þar fara
yfir meðal annars hvernig losna á við
mosa úr grasflötum, hvort nota skuli
kalk og hvaða áburð er best að nota.
Fræðslan fer fram í sal Garð
yrkju félagsins að Síðumúla 1,
Reykjavík, og hefst kl. 20. Boðið
er upp á streymi fyrir þá sem ekki
eiga heimangengt.
Að fræðslu lokinni verður
almennt garðyrkjuspjall yfir kaffinu
og opið bókasafn. /sá
Nú er tíminn til að takast á við gras-
flötina. Mynd / Ochir-Erdene Oyunmedeg
Íslenskur hópur á heims-
þing dreifbýliskvenna
Dagana 17.-25. maí nk. fer fram
30. heimsþing Alþjóðasambands
dreifbýliskvenna (ACWW) í
Kuala Lumpur í Malasíu.
Auk þingstarfa og kosninga
verður boðið upp á skoðunarferðir
um nágrennið og blásið til
hátíðarkvölds í Þjóðarhöll Malasíu.
Samtökin beita sér fyrir
hagsmunum dreifbýliskvenna um
heim allan og bættri stöðu þeirra
innan eigin samfélaga.
Á vefnum acww.org.uk kemur
fram að auk brýnna umhverfis
sjónarmiða er fókusinn fram til
ársins 2026 meðal annars settur
á umhverfisvæna tæknivædda
ræktun, heilbrigði kvenna í
dreifbýli og kennslu og þróunar
verkefni ýmis, stór og smá.
Sem dæmi um slíkt verkefni
er að safna fé fyrir áveitukerfi
fyrir þorp í Afríku. ACWW hefur
ráðgefandi stöðu hjá Sameinuðu
þjóðunum varðandi málefni
dreifbýliskvenna.
Jenný Jóakimsdóttir á skrifstofu
Kvenfélagasambands Íslands á
Hallveigarstöðum segir að 10
íslenskar konur, einkum af Suður
og Suðvesturlandi, séu skráðar í
ferðina. Um 450 þátttakendur
frá öllum heimsálfum hafi boðað
komu sína á þingið að þessu sinni.
Jenný sótti einnig Evrópuþing
samtakanna í Skotlandi í haust.
Hún segir íslenska hópinn hlakka
mjög til að sækja þingið og kynna
sér starf og áherslur ACWW nánar.
/sá
TíuíslenskarkonurfaraáheimsþingACWW. Mynd / acww.org