Bændablaðið - 11.05.2023, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
hátt og lágt reglulega, enda þarf
að halda nærumhverfi hænanna
hreinu svo smitálag á þær sé í
lágmarki, en einnig vegna hænanna
sjálfra. Hænurnar þrífast reyndar
ágætlega í rökkri og þurfa ekki
ljós þess vegna, en ef ætlunin er
að halda uppi eggjaframleiðslunni
er mikilvægt að vera með góða
lýsingu yfir veturinn. Þeim er
nefnilega eðlislægt að verpa færri
eggjum á veturna og sumar tegundir
af hænum stoppa alveg varp yfir
vetrartímann. Með því að stjórna
lýsingunni í hænsnakofanum má
þó lengja varptímann og viðhalda
eggjaframleiðslunni lengur.
Miða skal við að halda hefð-
bundinni daglengd hjá hænum
upp á a.m.k. 10 klukkustundir og
einfaldast er að stýra því þannig að
ljós kvikni einfaldlega sjálfkrafa,
þegar þess er þörf, á morgnana og
seinnipartinn þegar dimmt er úti.
Þetta má gera með ofureinföldum
tímastilltum klukkum eða búnaði
sem nemur birtu.
Þess má geta að góð lýsing
hjálpar einnig hænum að komast í
gang með varpið ef þær hafa fellt
fjaðrirnar síðsumars eða að hausti
en sá tími er þeim eðlislægur til
þess að fella fjaðrir enda er þá gnótt
fæðu í umhverfinu í náttúrunni og
því upplagt að skipta um fjaðrir á
þeim tíma.
Setprik
Hænurnar eiga að geta setið
samtímis á setpriki og ætti að miða
við 20-25 cm plássi fyrir hverja
hænu á slíku priki. Heppilegt er
að prikið sé þannig að þær nái
góðu gripi og reynist vel að nota
ferkantaðar spýtur, sem eru 38 mm
á breidd, með afhefluðum köntum.
Setprikin má setja víða í kofanum
og í stíunum en þau ætti að setja í
ólíkum hæðum svo hver hæna geti
fundið sér heppilegan náttstað.
Miða ætti við að staðsetja þau um
20-25 cm frá vegg, svo hænurnar
hafi nægt rými og svo ætti að vera
prik 10 cm framan við varpkassana,
til að auðvelda hænunum inn- og
útgang. Undir setprikum getur
verið afar gagnlegt að staðsetja
plötu sem safnar á sig skítnum sem
hænurnar skila af sér þegar þær
sitja á prikunum. Þetta sparar bæði
undirburð og gerir alla vinnu við
þrif einfaldari.
Hænsnastigi
Hænsnastigi er sjálfsagður hlutur í
hænsnakofa og auðveldar hænunum
að ferðast um kofann án þess að
flögra. Svona stiga, sem getur t.d.
verið 20-25 cm breið plata með
áfestum þverfestum spýtum, með
12,5 cm bili á milli hverrar, ætti
að setja t.d. upp að varpkössum og
hallinn ætti að vera um 45 gráður.
Jarðvegsbað
Hænum er eðlislægt að þrífa
fjaðrirnar og þetta gera þær í
náttúrunni með því að nudda sér
upp úr jarðvegi með því að fara í
eins konar moldarbað. Þegar hænur
eru einungis með aðgengi að kofa
og stíu er ekki víst að þær geti
fullnægt þessari þörf sinni þar en
til þess að koma til móts við þær
má t.d. staðsetja bala með þurrum
jarðvegi í, oft er notaður sandur eða
mold, á gólfinu, sem þær geta þá
notað til þess að þrífa sig.
Fóður og vatn
Hænur ættu alltaf að hafa aðgengi
að vatni og fóðri allan sólarhringinn
og einfaldast er að nota þar til gerð
trog sem deila út fóðri og vatnsdalla
með drykkjarstútum enda haldast
þeir hreinni. Mælt er með a.m.k.
tveimur drykkjarstútum fyrir 10
hænur og a.m.k. 10 sentímetra
plássi fyrir hverja hænu við
fóðurtrogið.
Varpaðstaðan
Varpkassar eru hænum mikilvægir
og fer fjöldi þeirra eftir fjölda
hænanna, en ráðlagt er að miða
við eitt varpsvæði fyrir hverjar
4-5 hænur og að lágmarki a.m.k.
2 varpkassa. Þessir varpkassar
ættu að vera a.m.k. 30x30x30
sentímetrar og ætti að staðsetja
nokkuð frá gólfi, ekki nær gólfi
en 60 sentímetra. Varðandi hönnun
varpkassa má benda á grein um
hönnun þeirra í 11. tölublaði
Bændablaðsins árið 2021.
Heimavist MA og VMA
8 MÍNÚTUR
3 MÍNÚTUR
7 MÍNÚTUR
3 MÍNÚTUR
15
M
ÍN
ÚT
UR
RUTÚ
NÍ
M 2
RUTÚ
NÍ
M 8
MENNINGARHÚS
SU
ND
RÆ
KTIN
ÍÞ
RÓ
TT
AHÚS
M
IÐBÆ
RINN
VERSLANIR
BÍÓHÚS
LYSTIGARÐURINN
KAFFIHÚS
HL
ÍÐ
AR
FJ
AL
L
VE
IT
IN
GA
RS
TA
ÐU
R
MA
HE
IM
AVIST MA OG VMA Á AKUREYRI
VMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR
HEIMAVIST.IS
FRAMHALDSSKÓLANEMENDUR
ALLS STAÐAR AÐ AF LANDINU
TIL 8.JÚNÍ
Jörðin Hallgilsstaðir 1 í Langanesbyggð er til leigu.
Á jörðinni er stundaður sauðfjárbúskapur með um 400 fjár. Tún og ræktarlönd eru um
35 ha, beitiland gott og húsakostur ágætur. Leigutími er frá 1. ágúst nk. en getur verið
samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar fást hjá Jónasi Pétri Bóassyni formanni Jarðasjóðs Langanesbyggðar
s. 844 0752 og á netfanginu jpb@centrum.is Þeir sem hafa áhuga á því að leigja jörðina
eru vinsamlegast beðnir að skila inn tilboði á skrifstofu Langanesbyggðar eða á netfangið
bjorn@langanesbyggd.is. Umsóknarfrestur framlengdur til 20.júní.
Jarðasjóður Langanesbyggðar.
Límtréshús, bogahús
og færanlegar byggingar
Hýsi.is
Færanlegar byggingar
Bogahús
Límtréshús
Drykkjarstútar eru einfaldir í uppsetningu og veita hænunum hreint og gott vatn.
Bændablaðið
kemur næst
25. maí