Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Í nýrri skýrslu Ráðgjafarmið-
stöðvar landbúnaðarins er fjallað
um niðurstöður úr rekstri 185
sauðfjárbúa sem skiluðu inn
gögnum fyrir 2019-2021. Þátttöku-
búin eru með að jafnaði 485 vetrar-
fóðraðar ær og endurspegla um
fjórðung landsframleiðslu dilka-
kjöts árið 2021.
Í meðfylgjandi töflu má sjá afkomu
þessara búa, raðað eftir framlegð
tekna. Niðurstöðurnar sýna að afkoma
íslenskra sauðfjárbúa er að meðaltali
óviðunandi en breytileiki milli búa er
nokkuð mikill. Það byggir að mestu
á afurðasemi, greiðslumarkseign,
bústærð, tekjusamsetningu og síðast
en ekki síst kostnaðardreifingu.
Meðalframleiðslukostnaður
dilkakjöts árið 2021 er 1.269 kr/kg
og meðalbúið í verkefninu greiðir 171
kr. með hverju kílói lambakjöts þegar
tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða
og afskrifta.
Hefði afurðaverð dilkakjöts haldið
í við almenna verðlagsþróun frá 2014
til 2021, hefði meðalafurðaverð ársins
2021 átt að vera 726 kr/kg en var þess
í stað 532 kr/kg. Þessi verðmunur
hefði skilað að jafnaði jákvæðri
rekstrarniðurstöðu búanna.
Helstu tækifæri sauðfjárbænda
liggja í aukinni afurðasemi og lægri
breytilegum kostnaði á hvert fram-
leitt kíló dilkakjöts. Munurinn á
breytilegum kostnaði efsta og neðsta
þriðjungs eru tæplega 350 kr/kg árið
2021. Hagnaður af heildarrekstri
þátttökubúanna jókst á milli ára en
í því samhengi er vert að hafa í huga
að launakostnaður er úr takt við
vinnuframlag rekstrarins. Einnig vekur
athygli að búin sem eru í efsta þriðjungi
eru að ganga á eignir, sem sést m.a. á
hlutfallslega minni viðhaldskostnaði
og afskriftum. Búin í neðsta þriðjungi
eiga mörg hver það sameiginlegt að
vera skuldsettari og hlutfallslega meira
í annari atvinnustarfsemi samhliða
sauðfjárræktinni en búin í efsta
þriðjungi.
Nauðsynlegt er því að tryggja
rekstrarumhverfi sérhæfðra
sauðfjárbúa þannig að beinar tekjur af
framleiðslu sauðfjárafurða standi undir
eðlilegri launakröfu, nauðsynlegum
fjárfestingum, tæknivæðingu og
nýliðun.
Launagreiðslugeta sauðfjárbænda
Ef skoðaðar eru atvinnutekjur á
mánuði eftir landsvæðum skv. gögnum
Hagstofunnar árið 2021, skilgreindum
mikilvægum sauðfjársvæðum skv.
skilgreiningu Byggðastofnunar og á
sauðfjárbúum skv. greiningu RML,
kemur þessi launamunur skýrt fram.
Í stöðugri umræðu verkalýðs-
forystunnar um kaup og kjör fólks á
almennum vinnumarkaði er gjarnan
og ákaft fjallað um mikilvægi þess
að matvælaverði sé haldið niðri
en um leið er þá vegið að kjörum
frumframleiðenda, í þessu samhengi
að launakjörum bænda.
Rekstraruppgjör 2022
Öflun rekstrargagna ársins 2022 er
þegar hafin og er öllum þátttökubúum
auk nýrra boðin þátttaka.
Svona gagnvirk greiningarvinna
verður ekki unnin nema í nánu
samstarfi við bændur og er þeim
þakkað kærlega fyrir.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason og
María S. Jónsdóttir,
ráðunautar á rekstrar- og
umhverfissviði RML.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
María Svanþrúður
Jónsdóttir.
Eyjólfur Ingvi
Bjarnason.
Afkoma sauðfjárbúa 2021
2019 2020 2021
Efsti 1/3 Meðaltal Neðsti 1/3 Efsti 1/3 Meðaltal Neðsti 1/3 Efsti 1/3 Meðaltal Neðsti 1/3
Afurðatekjur kr/kg 517 505 488 581 562 538 604 588 570
Greiðslur úr sauðfjársamning kr/kg 676 629 572 696 643 608 787 743 718
Greiðslur úr rammasamning kr/kg 28 29 33 36 36 38 30 38 45
Tekjur vegna sauðfjárræktar kr/kg 1.221 1.163 1.093 1.314 1.242 1.183 1.421 1.368 1.333
Aðkeypt fóður kr/kg 22 33 38 28 40 55 28 43 55
Áburður og sáðvörur kr/kg 122 149 180 137 167 199 130 179 226
Rekstur búvéla kr/kg 110 144 186 103 147 198 133 165 224
Rekstrarvörur kr/kg 72 93 121 85 102 129 91 117 158
Ýmis aðkeypt þjónusta kr/kg 79 116 155 95 128 176 102 136 168
Breytilegur kostnaður alls kr/kg 406 535 680 448 584 756 484 639 832
Framlegð kr/kg 815 627 412 866 657 427 937 729 501
Framlegðarstig tekna af sauðfjárrækt 66,7% 54,0% 37,7% 65,9% 52,9% 36,1% 66,0% 53,3% 37,6%
Viðhald eigna kr/kg 61 69 77 78 103 116 72 100 122
Rekstur húsnæðis kr/kg 59 63 70 61 63 67 66 67 72
Bifreiðakostnaður kr/kg 56 64 76 62 63 73 68 66 68
Annar rekstrarkostnaður kr/kg 53 62 80 66 63 72 59 67 83
Laun og launatengd gjöld kr/kg 332 308 284 346 311 288 344 330 309
Fastur kostnaður alls kr/kg 560 565 588 614 603 616 610 630 653
Rekstr.niðurst. f. fjármagnsl. og afsk. kr/kg 255 62 -175 252 54 -190 328 99 -152
Afskriftir kr/kg 206 178 156 190 179 159 169 185 192
Fjármagnsliðir kr/kg 74 83 87 73 81 80 80 86 101
Rekstrarniðurstaða sauðfjárbús kr/kg -25 -198 -419 -11 -206 -429 79 -171 -444
Rekstrarn. sauðfjárbús % af sauðfjárt. -2,0% -17,1% -38,3% -0,9% -16,6% -36,3% 5,5% -12,5% -33,3%
Framl.kostn. án afskrifta og fjárm.liða kr/kg 966 1.100 1.268 1.062 1.188 1.372 1.093 1.269 1.485
Hagnaður/tap af heildarrekstri, þús. kr. 1.834 821 32 1.816 808 214 2.923 1.647 1.232
Kartöflumygla (Phytophtora infestans) er
sveppasjúkdómur sem veldur myglu og
rotnun bæði á kartöflugrösum og hnýðum.
Í hlýju og röku veðri – hiti yfir 10 °C og
rakastig yfir 75% – eru kjöraðstæður fyrir
mygluna að breiða úr sér og getur það gerst
mjög hratt.
Myglan getur borist
nokkuð langar leiðir
með vindi en talið er að
virk smitgró geti borist
með vindi einhverja tugi
kílómetra.
Veðurskilyrði ráða
því miklu um útbreiðslu
myglunnar en smit þarf
líka að vera til staðar.
Smitleiðir
Algengasta smitleiðin er sýkt útsæði. Smit
berst þá frá móðurplöntu upp í kartöflugrasið,
sveppurinn myndar þar gró sem dreifast í lofti
á nærliggjandi plöntur og svo koll af kolli.
Smit getur einnig borist frá hnýðum sem hafa
orðið eftir í garðinum, lifað af veturinn og
spírað upp árið eftir.
Ef smituðum kartöflum er fargað utan dyra
er mikilvægt að urða þær vandlega eða hylja
með svörtu plasti þannig að smit berist ekki
í nærliggjandi kartöflugarða.
Útsæði og kartöflumygla
Mikilvægt er að velja heilbrigt útsæði þegar
kartöflur eru settar niður og alls ekki velja
útsæði úr sýktum görðum.
Stofnræktun útsæðis fer fram í Eyjafirði
og Hornafirði. Þau landsvæði hafa að mestu
verið laus við myglu og því ber að forðast að
flytja þangað útsæði af ræktunarsvæðum þar
sem myglan hefur komið upp. Erlendis má
segja að kartöflumygla sé landlæg, en veðurfar
ræður þar mestu um útbreiðslu hverju sinni.
Því er alltaf hætta á að innflutt kartöflu-
útsæði beri með sér myglusmit. Við
arfgerðargreiningu á kartöflumyglu árin
2021 og 2022 hafa öll sýnin verið af sama
stofninum, EU41A2. Sá stofn var algengur í
Danmörku á árunum 2018-2019 og því líklegt
að smit hafi borist hingað annaðhvort með
dönsku útsæði eða matarkartöflum.
Myglusmit undanfarin ræktunarár
Ef litið er nokkra áratugi aftur í tímann hefur
kartöflumygla komið upp á Suðurlandi af og
til og valdið mismiklu tjóni. Nú er hins vegar
staðan þannig að mygla hefur komið upp á
hverju ári frá sumrinu 2019.
Hvort um er að ræða breytt veðurfar,
meira smit í umferð, eða hvort tveggja, er
umhugsunarefni. Hlýrra veðurfar eykur hættu
á kartöflumyglu og því getum við búist við að
þurfa að glíma við þennan sjúkdóm á hverju ári.
Mikil útbreiðsla varð á myglu sumarið 2021
og skemmdist þá uppskera bæði hjá bændum
og í heimilisgörðum víða á Suðurlandi. Við
skoðun á útsæði í Þykkvabæ vorið 2022 kom
í ljós mikið myglusmit og því líklegt að smit
bærist í ræktun bænda þá um sumarið.
Mygluspá og aðgerðir
sumarið 2022
Haustið 2021 var sett í gang verkefni hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem
miðaði að því að draga úr tjóni af völdum
kartöflumyglu og auðvelda bændum að fást
við sjúkdóminn. Verkefnið hlaut styrk úr
Þróunarsjóði garðyrkju. Markmið verkefnisins
var annars vegar að þróa mygluspá byggða á
veðurmælingum og hins vegar að fylgjast með
myglusmiti, miðla upplýsingum til bænda og
veita þeim ráðgjöf við mygluvarnir.
Mygluspárhluti verkefnisins var unninn
í samstarfi við Jens Grønbæk Hansen,
lektor við Aarhus Universitet. Hann hefur
Kartöflumygla og mygluspá
– Staða og horfur á komandi ræktunartímabili
Helgi
Jóhannesson.
Reiknuð mygluhætta út frá veðurgögnum 2022 og dæmi um ráðgjöf vegna úðunar.