Bændablaðið - 11.05.2023, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
Þessi 20 tonna bátur til sölu. Báturinn er smíðaður úr eik hjá Slippstöðinni
á Akureyri og sjósettur 1973, upphaflega Bliki EA á Dalvík.
Skrokkur bátsins er uppgerður sem nýr, þilfar nýtt (mahogany),
stýrishús nýtt (ál), brennsluolíutankar nýir.
Upplýsingar í síma 8921669 og mail thorirjon@gmail.com
um árabil starfað við rannsóknir á kartöflumyglu og
þróun mygluspárkerfa. Ráðgjafarhluti verkefnisins var
unninn í samstarfi við Benny Jensen, kartöfluráðunaut
hjá BJ-Agro í Danmörku. Sjálfvirk veðurstöð var
sett upp í Þykkvabæ og var mygluhættan metin út frá
veðurgögnum og veðurspám eftir að kartöflugrös komu
upp og út ræktunartímabilið. Fylgst var með ræktuninni
og leitað að myglu, og bændur úðuðu með fyrirbyggjandi
varnarefnum ef veðurfar benti til mygluskilyrða.
Reynslan sumarið 2022
Fyrstu myglusmitin sáust í Þykkvabæ og í Flóa um 20.
júlí. Þar sem bændur voru á varðbergi gagnvart myglu
brugðust þeir skjótt við og úðuðu akrana skipulega
um leið og myglu varð vart. Myglan náði ekki mikilli
útbreiðslu og tjón varð óverulegt.
Samkvæmt veðurmælingum var veruleg mygluhætta
fyrir hendi seinni hluta sumarsins 2022 og því ljóst að
myglan hefði getað náð mikilli útbreiðslu ef ekki hefði
verið brugðist við af festu. Má því segja að árvekni bænda,
mygluspáin og ráðgjöf hafi þarna skilað góðum árangri
í baráttunni við kartöflumygluna.
Komandi ræktunartímabil
Sumarið 2023 verður framhald á verkefninu frá í
fyrra. Haldið verður áfram að þróa mygluspá út frá
veðurmælingum. Auk veðurstöðvar í Þykkvabæ verða
settar upp veðurstöðvar í Eyjafirði og Hornafirði og
mygluhætta metin þar á sama hátt. Bændur geta þá fylgst
með mygluhættu út frá veðurfari yfir ræktunartímabilið
og ráðgjöf vegna varnaraðgerða verður markvissari.
Leitað verður að myglusmiti í samráði við bændur og
upplýsingum og ráðgjöf miðlað til bænda til að samræma
viðbrögð og varnaraðgerðir. Ef mygla kemur upp verða
tekin sýni til arfgerðargreiningar þar sem mjög mikilvægt
er að vita hvaða stofna um er að ræða. Stofnarnir eru
misskæðir og sumir þeirra hafa þróað mótstöðu gegn
ákveðnum varnarefnum.
Lokaorð
Út frá reynslu undanfarinna ára er líklegt að kartöflumygla
verði viðvarandi vandamál í kartöfluræktun á Íslandi.
Því er mikilvægt að allir sem hlut eiga að máli vinni
að því að lágmarka það tjón sem sjúkdómurinn kann
að valda. Þó svo að fjármögnun á mygluspárverkefni
RML sé tryggð í ár með styrk úr Þróunarsjóði garðyrkju
er ljóst að þessi vinna mun taka mörg ár og því þarf að
tryggja fjármögnun til lengri tíma. Íslensku kartöfluyrkin
Gullauga og Rauðar íslenskar eru sérstaklega viðkvæmar
fyrir kartöflumyglu og annaðhvort þarf að kynbæta þessi
yrki og efla mótstöðu, eða finna önnur yrki sem þola
betur mygluna.
Ef tryggja á framtíð kartöfluræktar á Íslandi þarf því
að efla rannsóknarstarf sem bæði er fjárfrekt og kallar á
sérfræðiþekkingu. Því miður er hvort tveggja af skornum
skammti hér á landi. Kartöflur eru mikilvæg fæða fyrir
okkur mannfólkið og kartöfluræktun er því mikilvæg
atvinnugrein sem ber að styðja í baráttu við þennan vágest
sem kartöflumyglan getur verið.
Helgi Jóhannesson,
ráðunautur í garðyrkju.
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Sjálfvirk sólardrifin veðurstöð í Þykkvabæ til mælinga
á mygluhættu.
Missir þú alltaf af Bændablaðinu?
Komdu í áskrift!
Einungis 11.900 krónur á ári fyrir eldri borgara og öryrkja.
14.900 krónur fyrir alla aðra.
Frekari upplýsingar á www.bbl.is eða í síma 563-0300