Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Ásgrímsleiðin er ökuferð um
Flóann á söguslóðir Ásgríms Jóns-
sonar listmálara, með viðkomu á
sýningum Listasafns Árnesinga
og Byggðasafns Árnesinga. Leiðin
byrjar eða endar í Húsi Ásgríms,
við Bergstaðastræti í Reykjavík.
Ásgrímur var fæddur 4. mars
1876 í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í
Flóa og varð brautryðjandi í listasögu
þjóðarinnar. Í Húsinu á Eyrarbakka
er sýningin Drengurinn, fjöllin og
Húsið, en þar réðist Ásgrímur til
vistar upp úr fermingu. Þar er varpað
ljósi á æsku hans og unglingsár. Frá
þessu er greint í fréttatilkynningu.
Farið er um Stokkseyri að
Gaulverjabæjarkirkjugarði þar
sem Ásgrímur hvílir. Hægt er
að heimsækja minnismerki um
listamanninn, sem stendur innan
skógræktarinnar Timburhóls, stutt
frá æskustöðvum hans. Þótt húsin í
Rútsstaðarhverfi séu löngu horfin,
má enn sjá frá veginum Álfakirkju
Ásgríms. Á þessari leið sést vel
fjallahringurinn sem fóstraði
sveininn og veitti honum innblástur.
Svo er sýningin Hornsteinn,
afmælissýning Listasafns Árnesinga
í Hveragerði, heimsótt en þar eru
fjölmörg verk Ásgríms sýnd.
Með Ásgrímsleiðinni vilja söfnin
vekja athygli á ævi og störfum
Ásgríms Jónssonar en einnig fagna
afmæli safnanna. Byggðasafnið á
70 ára afmæli á árinu og Listasafn
Árnesinga fagnar 60 ára afmæli.
Ásgrímsleiðin er samstarfsverkefni
Byggðasafns Árnesinga, Listasafns
Árnesinga og Listasafns Íslands,
og er styrkt af Safnaráði og
Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Rætur Listasafns Árnesinga
má rekja til gjafar Bjarnveigar
Bjarnadóttur, frænku Ásgríms, og
tveggja sona hennar sem færðu
Árnesingum sjötíu listaverk eftir
helstu listamenn þess tíma. Nítján
þessara verka voru eftir Ásgrím.
Listamaðurinn sjálfur ánafnaði
Listasafni Íslands verk sín og
heimili á Bergstaðastræti 74 og
þar er í dag sýning á heimili hans
og verkum.
/ÁL
Bílferð um söguslóðir Ásgríms
Ásgrímur Jónsson, listamaður.
MENNING
Á dögunum birtist í Bændablaðinu
smáauglýsing þar sem tækifæris-
skáld bauð fram krafta sína.
Var boðin þjónusta við samningu
ljóða, sönglaga, níðvísna og
annarra texta. Vettvangurinn gæti
verið til dæmis brúðkaup, skírnir,
skilnaðarpartí, afmæli eða bara
stofuveggurinn.
Þegar grennslast var fyrir um
manninn á bak við auglýsinguna
kom í ljós að þar var á ferðinni Daníel
Daníelsson frá Stykkishólmi, sem
einnig ólst upp á Kirkjubæjarklaustri
og Selfossi en er nú háskólanemi í
Reykjavík
„Ég var einn af þeim útvöldu sem
komust inn í meistaranám í ritlist
við Háskóla Íslands fyrir tveimur
árum og nú þegar útskrift nálgast
er mikil áskorun fólgin í því að
verða sér úti um verkefni sem miða
að ritstörfum,“ segir Daníel. „Ég er
búinn að vinna mig upp á hnefanum,
flutti í borgina fyrir háskólagráðu og
prófaði að feta launþegabrautina,
draum sem var í raun tálsýn og
breyttist fljótlega í martröð. Níu til
fimm er ekki fyrir háfleyga, ég sé
það í dag.“
Hann segist því reyna að sækja
tækifærin í stað þess að bíða eftir
þeim, nýkominn úr fæðingarorlofi.
„Svo ef fólk vill ástarbréf, ljóð, vísur,
barnasögur, smásögur eða söngtexta
fyrir afa sinn eða systur eða besta
vin eða yfirmann eða undirsáta eða
fyrrverandi, þá veit fólk hvert það
getur leitað fyrir öðruvísi gjöf. Og
auðvitað er prís á vinnuna.“
Daníel var fyrr í vor meðhöfundur
að bókinni Best fyrir með söguna
Þessi saga er mín upplifun. Seinna
á árinu er áætluð útgáfa ljóða-
bókarinnar Ég get ekki hætt að
hugsa um Rithöfundasamband
Íslands. Um hvers vegna hann kaus
að auglýsa í Bændablaðinu segir
hann að án fjölbreyttra verkefna
til að spreyta sig á geti hann lítið
þróast sem skáld.
Hann hefur fengið einhver
viðbrögð við auglýsingu sinni.
„Fólk er varfærið þegar skáld ber
að garði og ég skil vel að flest kaupi
bara bók í Bónus fyrir jólin handa
sínum nánustu – ég var þar fyrir
ekki svo löngu. Ég legg áherslu á
að list er list, hana má gagnrýna
en ritskoðun kaupenda finnst mér
vafasöm, svo það sé á hreinu. Pöntun
hjá skáldi er alltaf hættuspil!“
/sá
Skáldskapur við öll tækifæri
Daníel Daníelsson segist hafa að markmiði að skapa augnablik sem geti
breytt lífi fólks. Mynd / Aðsend
Smáauglýsingin sem vakti athygli.
Sumarhátíðir:
Náttúrubörn á Ströndum
Náttúrubarnahátíð á Ströndum
verður haldin helgina 14.–16. júlí
á Sauðfjársetrinu í Sævangi, rétt
sunnan við Hólmavík.
Á fjölskylduhátíðinni fá gestir,
börn og fullorðnir tækifæri til að
finna eða rækta sitt innra náttúrubarn
á fjölbreyttum viðburðum sem
einkennast af útivist, fróðleik og
skemmtun, að því er fram kemur í
tilkynningu frá skipuleggjendum.
Náttúrubarnaskólinn stendur
fyrir hátíðinni og Dagrún Ósk
Jónsdóttir þjóðfræðingur heldur
utan um viðburðinn. „Skipulagningin
gengur mjög vel, við erum komin
með glæsilega dagskrá, fjölbreytt
og skemmtileg atriði, tónlist,
spennandi smiðjur, gönguferðir og
útivist. Við hefjum hátíðina alltaf á
að framkvæma veðurgaldur, til að
tryggja gott veður fyrir helgina, enda
fer hún að mestu fram utandyra á
svæðinu umhverfis Sævang.“
Á hátíðinni verður meðal annars
kvöldskemmtun með Gunna og Felix,
Ingó Geirdal töframaður verður með
töfrasýningu, Benedikt búálfur og
Dídí koma í heimsókn. Haldnar verða
spennandi smiðjur og stöðvar, meðal
annars frá Þykjó, Náttúruminjasafni
Íslands og Eldraunum. Hægt verður
að fara á hestbak hjá Strandahestum
og prófa kajak frá Sjóíþróttafélaginu
Rán, taka þátt í núvitundarævintýri
með Kyrrðarkrafti, gönguferðum,
útileikjum, fjölskylduplokki,
spurningaleik um náttúruna, hlusta
á drauga- og tröllasögur, skjóta af
boga og ótal margt fleira.Ókeypis er á
öll atriði hátíðarinnar, en hún er styrkt
af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.
„Öll börn eiga rétt á menningu og
að læra að þekkja náttúruna. Ég
hlakka mikið til, þetta er alltaf svo
ótrúlega skemmtilegt og það eru svo
sannarlega öll velkomin að koma og
kynnast náttúrunni, leika sér saman
og skapa skemmtilegar minningar,“
segir Dagrún. /ghp
Frá Náttúrubarnahátíðinni á Ströndum í fyrra. Gestir prófa kajaka. Myndir / Aðsendar
Hægt er að taka þátt í núvitundarævintýri, gönguferðum og útileikjum.
BREYTING Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU KENNITÖLUR 2022
LÍFEYRIS í milljónum króna 2022 Nafnávöxtun (5,8%)
Iðgjöld 769 Hrein raunávöxtun (14,2%)
Lífeyrir (2.121) Hrein raunávöxtun, 5 ára m.tal 2,6%
Hreinar fjárfestingartekjur (2.557) Hrein raunávöxtun, 10 ára m.tal 3,3%
Rekstrarkostnaður (171) Fjöldi virkra sjóðfélaga 2.030
Breyting á hreinni eign (4.080) Fjöldi sjóðfélaga með réttindi 10.768
Hrein eign frá fyrra ári 45.108 Fjöldi lífeyrisþega 4.036
Hrein eign til greiðslu lífeyris 41.028 Tryggingafræðileg staða (9,3%)
EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK Stjórn
í milljónum króna 2022 Skúli Bjarnason, formaður stjórnar
Eignarhlutir í félögum og sjóðum 19.549 Guðrún Lárusdóttir, varaformaður
Skuldabréf 21.075 Erna Bjarnadóttir
Skammtímakröfur o.fl. 146 Guðbjörg Jónsdóttir
Handbært fé 300 Örn Bergsson
Eignir alls 41.070
Skuldir 42 Framkvæmdastjóri
Hrein eign til greiðslu lífeyris 41.028 Ólafur K. Ólafs
STARFSEMI Á ÁRINU 2022
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík