Úrval - 01.06.1965, Blaðsíða 10
Er rétt að veita unglingum
áfengi í heimahúsum?
Unglingur beið bana í bílslysi eftir heimboð hjá for-
eldrum eins vinar síns.
Eftir Sloan Wilson.
ooooooo
1 $ Þ 1 Jí
&
EGAR þér haldið heim-
boð fyrir unglinga á
heimilum yðar, er þá
rétt gert að veita þeim
áfenga drykki? Ég
svara þeirri spurningu ákveðið
neitandi.
Ég veit að ég hef þegar komiS
mörgum til aS rökræða þetta mál.
En látum oss nú líta á málið frá
öðrii sjónarmiði. Hví í ósköpunum
ætti fullorðiS fólk að vera að veita
unglingum áfengi?
„Af því að allir vinir mínir drekka
áfengi,“ svarar margur unglingur-
inn. „Af því að það á ekki að gera
áfengið að neinu dularfullu, og
þá á að leyfa börnum að prófa það
undir eftirliti," segir einn íhugull
faðir. „Af því að það er betra fyrir
börnin að læra að drekka í heima-
húsum, heldur en í veitingahúsum,“
svarar fjöldi foreldra i einu hljóði.
í minum augum er allt þetta tóm-
ur þvættingur. Bæði heilbrigð
skynsemi og þung vísindaleg rök
segja oss, að foreldrar ættu og setja
ákveðnar reglur, og ættu að knýja
þær fram í sínum eigin ltúsum að
minnsta kosti. Börnin vænta þess,
að foreldrar hafi fastar og ákveðn-
ar skoðanir í þýðingarmiklum mál-
efnum, og þau bera litla virðingu
fyrir foreldrum, sem ekki halda
uppi neinum aga eða stjórn.
Þeirri röksemd að „allir vinir
rnínir drekka áfengi,“ er auðvelt
að svara. í fyrsta lagi er það senni-
lega ekki rétt. Og jafnvel þótt svo
væri, þurfa bæði drengirnir og
stúlkur að læra að fylgja ekki alltaf
fjöldanum. Það er ósköp auðvelt
að vera einstaldingshyggjumaður,
ef maður aðeins er viss i sinni sök
og hefur óhyggjandi röksemdir.
Sú röksemd, að börn, sem hafa
fengið að prófa áfengið á unga
aldri, muni ekki drekka i óhófi
8
Surburbia Today