Úrval - 01.01.1968, Side 8
6
ÚRVAL
honum í 10 eða 12 daga, ef hann
væri sparneytinn. Hann hafði keypt
80 pund af silungi til að færa
konu sinni, en silungurinn var
harðfrosinn. Hann fann í björgun-
arútbúnaðinum, flugelda, riffil og
fimm stokka af eldspýtum og exi.
Gauchie smeygði sér í svefnpok-
ann, eftir að hafa rannsakað birgð-
irnar og sofnaði þegar leið á nótt-
ina.
SOS í SNJÓNUM.
Næsta dag var frostið 11 stig.
Lausamjöllina skóf á ísnum á
þessu einmanalega vatni. Gauchie
áætlaði, að hann væri staddur eins
og 400 metra frá ströndinni, og
flugvél, sem flygi yfir ætti að eiga
auðvelt með að sjá hann. En flygi
bara nokkur flugvél yfir? Hann var
ekki á alfaraleið flugvéla, og aðal-
leitin, sem myndi byggjast á flug-
áætlun hans, yrði 100 mílum suð-
austar.
Hann hellti nokkru af þeirri
olíu, sem hann átti eftir 1 pottinn
sem hann kveikti eld í til að hita
upp vélina og þegar hann hafði
kveikt eld í honum lét hann pott-
inn undir rafhlöðurnar. Hann
reyndi enn . . . . Mayday, Mayday
... en það var ekkert svar.
Honum datt í hug, að reyna að
endurbæta loftnetið með því að
setja niður tré fyrir aftan vélina
og festa í það loftnetinu. Hann
gekk í átt til strandarinnar og leit-
aði þar uppi ungt tré, sem hann
rak niður í snjóinn 50 metrum fyr-
ir aftan vélina. Loftnetið, sem átti
að vindast ofan af hjóli ofan á
belgnum, sat nú fast, og hann
glímdi daglangt við að losa það.
Þegar honum hafði loks tekizt það,
ríkti sama þögnin eftir sem áður
í tækjunum. Hann var orðinn
þreyttur og gleypti einn sykur-
mola og lagðist til svefns.
Næstu tveir dagarnir juku hon-
um ekki vonirnar. Hann notaði
síðustu leifarnar af' olíunni til að
hita upp rafhlöðuna, ef ske kynni,
að styrkur hennar yxi við það, en
jafnframt notaði hann eldinn til að
elda sér súpu. Á þriðja degi heyrði
hann ekki einu sinni lengur suð í
tækjunum. Það var eitt sinn þeg-
ar hægði, að hann gekk um ís-
inn og tróð SOS í snjóinn, og var
hver stafur 150 feta hár. Hálfri
stundu síðar hafði fokið yfir neyð-
armerki þetta.
Það var þessa nótt, sem Gauchie
fann fyrir doða í tánum. Hann fór
úr loðstígvélunum og sokkunum og
hann kipptist við af hryllingi. Þrjár
tær á vinstri fæti hans og tvær á
hægra fæti voru kolsvartar. Hann
þóttist vita, að tærnar hefði kalið,
þegar hann stóð boginn við að reyna
að gera við senditækin. Hann vissi,
að kæmist blóðeitrun í drepið, yrði
hann dauður næsta morgun.
LÖNG LEIT
Hinn konunglegi kanadiski flug-
her hóf leit að Robert Gauchie að-
eins fáum klukkustundum eftir að
hann átti að vera kominn til Yellow-
knife. Tveggja hreyfla Albatross
vél hóf sig á loft í birtingu þriðja
dag febrúar og flaug í þá slóð sem
ætla mátti að Gauchie hefði flog-
ið, en sú leit bar ekki árangur.
Næsta dag fór önnur Albatross-