Úrval - 01.01.1968, Qupperneq 21
LE MANS GRAND PRIX
19
óþyrmilega til sín, hvað snerti öku-
menn og bílana sjálfa. Smám sam-
an fór það að taka þá lengri tíma
að ljúka umferðinni, þangað til það
tók þá orðið jafnlangan tíma og þá
Gurney og Foyt, sem skiptust á um
að aka fremsta Fordbílnum. Þeir
reyndu að missa ekki forystuna.
Þeir héldu samt hraðanum í skefjum
til þess að draga úr möguleikum á
bilunum. Hinn minnkandi hraði
ítölsku bílanna sagði sína sögu:
Hinn ofsafengni og hættulegi elt-
ingarleikur þeirra Ferrarimanna
hafði ekki komið að tilætluðum
notum. í rauninni var honum lokið.
Einni klukkustund síðar fór Foyt
að „blikka“ með bílljósunum í fögn-
uði sínum. Hann þaut framhjá
svarthvítköflótta fánanum í ryð-
rauða bílnum sínum. Þetta var fyrsti
bandaríski bílinn, sem unnið hafði í
kappakstrinum í Le Mans með
bandarískan ökumann við stýrið.
Ford hafði sett nýtt Le Mans-met.
Fordbíllinn hafði bæði farið fleiri
umferðir en áður hafði þekkzt eða
samtals 388, og meðalhraðinn hafði
verið meiri en nokkru sinni áður
eða 135.482 mílur á klukkustund ...
Nú var enn einum miklum kapp-
akstri lokið ... kappakstri sem lengi
yrði minnzt, kappakstri, sem hafði
verið mjög sögulegur og var nú
orðinn sögulegur atburður.
Fjall úr salti
í grennd við borgina Kúlab í Suður-Tadsjíkistan, einu Sovétlýðveld-
anna í Mið-Asíu, er fjall úr salti. Saltmagnið í fjallinu er svo gífur-
legt, að nægja mundi íbúum jarðarinnar í milljón ár við núverandi
neyzlu salts. Fjallið heitir Hoja Mumin. Það er úr hreinu salti, en
ofan á því er þunnt lag af aðfoknum sandi og moldarryki. Það er um
800 m. hátt yfir umhverfi sínu, fimm mílur i þvermálí og saltsilinn,
sem það er gert úr, nær tvær og hálfa mílu niður í jörðina.
— UNESCO-Courier.
Treystu aldrei dómgreind konu þinnar. Sjáðu bara hverjum hún
er gift.
Heimilisverk eða húsverk eru störf, sem enginn veitir athygli nema
þau séu ekki unnin.
Hjónabönd og skilnaðir eru tíðir viðburðir meðal kvikmyndaleik-
ara, og geta samböndin orðið nokkuð flólcin. Eitt sinn segir kona
við mann, er þau voru í samkvæmi:
— Ég held að við séum tengd.
— Hvernig það ? spurði maðurinn, sem þekkti konuna ekki.
— Jú, það er þannig, að ég er fjórða kona annars manns þriðju
konu þinnar!