Úrval - 01.01.1968, Page 33
í LUNDÚNUM
31
arkerfi, sem er flókið og yfirgrips-
mikið.
Það er margt furðulegt í and-
litssvip Lundúna, en eitt hið furðu-
legasta er samt sú staðreynd, að
varla nokkur Lundúnabúi veit nafn
þess manns, sem er æðsti stjórn-
andi þessarar risaborgar. Sá em-
bættismaður er Sir Percy Rugg.
Hans opinberi titill er Rt. Hon. the
Chairman of the Greater London
Council (GLC) eða Hæstvirtur
formaður borgarráðs Stór-Lundúna.
Hann er aðeins skipaður til þessa
embættis til eins árs, og skyldu-
störf hans eru aðallega fólgin í
því að koma fram við alls konar
tækifæri, en honum eru ekki leyfð
nein afskipti af stjórnmálum. Er
þetta gerólíkt þeim venjum, sem
ríkja í flestum stórborgum heims-
ins.
Borgarráð Stór-Lundúna er eins
konar smækkuð mynd þjóðþingsins.
Það skipa 100 borgarráðsmenn og
16 borgarfulltrúar. Formaðurinn er
kosinn af borgarráðinu árlega og er
útnefndur af þeim stjórnmálaflokki,
sem hefur meirihluta. Varaformað-
urinn er útnefndur af þeim flokki,
sem er í minnihluta. Það er ætlazt
til þess af þessum mönnum, að
þeir taki ekki þátt í stjórnmála-
baráttu, og er slíkt mjög ólíkt því,
sem gerist í bandarískum borgum.
Aðstaða þeirra er líka gerólík að
því leyti, að þeir eru ekki launaðir.
Þetta er ein ástæða þess, að
stjórnmálabaráttan í Lundúnum
hefur alltaf einkennzt af heiðar-
leika. Mesta valdastaðan í borgar-
ráði Stór-Lundúna ber heitið
„Leander of the Council“ (eins
konar foringi eða forystumaður
ráðsins), en Desmond Plummer
gegnir nú þeirri stöðu sem forystu-
maður meirihluta ráðsins. Segja má,
að John Lindsay, borgarstjóri í New
York, eða Richard J. Daley, borg-
arstjóri í Chicago, gegni hvor um
sig störfum þeirra beggja, Plumm-
ers og Sir Percy Ruggs.
Stjórn borgarinnar skiptist í tvö
aðalstig, borgarráð Stór-Lundúna
og stjórn hinna ýmsu hverfa borg-
arinnar. Hverfin (borough) eru
eins konar aðskildar „borgir“ og
eru samsafn kjördæma, sem mynda
borgarheildina eins og hverfin
Brooklyn og Bronx eru hlutar New
Yorkborgar. Sum þessi hverfi eru
mjög stór. Lambeth telur 339.400
íbúa og Wandsworth 331.450. Þau
hafa að miklu leyti sjálfsstjórn,
enda er samanlagt starfslið þeirra
næstum tvöfalt á við starfslið
borgarráðs Stór-Lundúna. Hinir
kosnu bæj arráðsmenn hverfanna
eru allir ólaunaðir sjálfboðaliðar,
sem lifa af öðrum störfum sínum,
en vinna fyrir hverfið í frítíma
sínum.
Lundúnir eru líklega eina stór-
borgin, þar sem borgaryfirvöldin
ráða engu um störf lögreglunnar.
Borgarlögreglan (The Metropolitan
Police District), en aðalbækistöðv-
ar hennar eru þekktar um gervall-
an heim undir nafninu Scotland
Yard, heyrir undir yfirstjórn Inn-
anríkisráðuneytisins, sem er eitt af
ráðuneytum ríkisstjórnarinnar.
Lundúnalögreglan ber ekki vopn
nema við alveg sérstakar aðstæð-
ur, eins og mörgum mun kunnugt.
Þetta hefur nú vakið hatramar