Úrval - 01.01.1968, Blaðsíða 49
Efitt af tcekjum Rússa við sjávar-
rannsóknir sýnt á Expo 67.
Eitt af verkefnum þeim sem fyr-
ir liggja, er að auka frjósemi sjáv-
arins með tilliti til þarfa fiska, sem
ætir eru, og auðvitað í þeim tilgangi
að auka sjófangið mönnum til
handa. Einnig er rannsakaður sjáv-
argróður og lífið í sjónum, af þeim
tegundum, sem ekki er venja að
hagnýta, en vísindamenn álíta að
vel megi nota til manneldis, því
margt af því sé hollt og gott.
En ekki er þetta samt aðaltil-
gangurinn með þessum rannsókn-
um, heldur hitt, að finna í hafinu
námur af málmum, málmgrýti og
öðrum nytsömum efnum. Sannleik-
urinn er sá að á síðustu 30 árum
hefur meira verið grafið úr jörð
af málmum en á öllum öldum áður.
Á síðustu 100 árum hafa verið unn-
in 15.000.000.000 tonn af olíu (15
milljarðar tonna). Það fer brátt að
ganga á birgðirnar ef þessu fer
fram. Ætlað er að það sem eftir er
af olíu, í námum á landi, muni end-
ast í 25 ár, það sem eftir er af kol-
um í 50 ár, það sem eftir er af járni
í 100 ár.
Byrjað er að vinna olíu á sjáv-
arbotni. Rússar gera það í Kaspía-
hafi fyrir utan Baku, og Banda-
ríkjamenn í Mexíkóflóa. Þessi olía
er unnin á landgrunninu, því þar
er hana að finna, og er þar rif fyr-
ir landi. Rifið eru 160 km á breidd.
En grunnsævi allt, um alla jörð, er
stærra að flatarmáli en Afríka.
Rússar áætla að það sem þekkt er
af olíulindum muni nema 170 þús-
und milljónum tonna, og að af því
séu 125 milljarðar á grunnsævi. I-
myndið ykkur hvílík ógrynni muni
finnast þegar farið verður að leita
á djúpsævi, hvílíka auðlegð muni
vera að finna í djúpi hafsins.
Rússar hafa gert það uppskátt að
nú sé farið að vinna járn úr námum
undir vötnum í Kanada og Japan,
og að Japanir séu líka farnir að
vinna kol úr neðansjávarnámum, að
gull sé grafið fyrir utan strendur
Alaska, tin við Malaya og zirkon-
íum í nánd við Ástralíu. Á yfir-
ráðasvæði Rússa í Austur-Þýzka-
landi hefur verið grafið eftir titan-
íum og ilmeníum neðansjávar. Ann-
ars staðar er gas og brennisteinn
unninn við sömu skilyrði. Rússar
hafa komizt að því að jafnvel land-
grunnið, sem svo til tiltölulega auð-