Úrval - 01.01.1968, Síða 57
MESTI SKEMMDARVARGUR JARÐARINNAR
55
Guineu, C. A. W. Monckton að
nafni, skýrði frá því, að hann hafi
einu sinni dvalið að næturlagi á
kóralrifi við strendur Trobriand-
eyjanna. Þar virtist ekki vera neitt
líf. En honum kom varla dúr á auga,
því að rottur spígsporuðu yfir hann
alla nóttina. Næsta morgun athug-
aði hann rifið gaumgæfilega. Hon-
um var það ráðgáta, á hverju öll
þessi rottumergð gæti lifað á þess-
ari gróðurlausu eyju. Hann sá
ekki nein merki um ávexti, hnetur,
skordýr né aðra fæðu.
„Svo tók ég eftir því“, segir
Monckton, „að nokkrar rottur voru
að ganga niður að yztu brún rifs-
ins. Þetta voru renglulegar rottur
með hárlausa, bleika hala. Þær virt-
ust hungraðar. Þegar þær komu
fram á brúnina, difu þær halanum
niður í sjóinn hver af annarri. Og
skyndilega stökk ein rottan næst-
um heilan metra upp í loftið. Og
ég sá, að þegar hún kom aftur til
jarðar, hékk krabbi í halanum á
henni. Rottan snarsneri sér við,
greip krabbann og hámaði hann í
sig. Og síðan hélt hún aftur á veiði-
staðinn. Og svona veiddu rotturn-
ar krabbana, hver af annarri."
Fyrir hálfri öld skrifaði enskur
dýrafræðingur þessi orð um rott-
una: „Rottan er líklega hættuleg-
asta og útbreiddasta plága, sem
þjáir mannkynið. Hún virðist ekki
gera neitt það gagn, er geti rétt-
lætt tilveru hennar.“ Á vissan hátt
hafði dýrafræðingur þessi rangt
fyrir sér, þótt segja megi, að þar
sé kannske ekki um beint aðal-
atriði að ræða. Manninum hefur að
vísu ekki tekizt að vinna sigur á
villtu rottunni, en honum hefur
tekizt að rækta eitt afbrigði henn-
ar í vissum tilgangi og hefur haft
mikið gagn af þessu nú þegar. Er
þar um að ræða hvítu rannsóknar-
stofurottuna með rauðu augun, sem
er eitt þýðingarmesta líffræðilega
vopn í hinu vísindalega vopna-
búri okkar í stríðinu við sjúk-
dómana. Enginn veit, hversu mörg-
um mannslífum hefur verið bjarg-
að með hjálp lyfja, sem fundin voru
upp í rannsóknarstofum og prófuð
þar fyrst á tilraunarottum. Sama
má segja um nýjar skurðaðferðir,
sem fyrst voru reyndar á tilrauna-
rottum, og ýmsa nýja líffræðilega
þekkingu, sem fengizt hefur við
rannsóknir á tilraunarottunum, en
sú nýja þekking mun verða til
mikils gagns fyrir mennina sjálfa,
því að þannig hafa þeir öðlazt dýpri
skilning á hinum líffræðilegu lög-
málum alls lífs. Það er því líklegt,
að hin hataða og fju-irlitna rotta sé
þannig að lokum að bæta mannin-
um að nokkru upp það eigna- og
líftjón, sem hún hefur bakað hon-
um um aldaraðir.
Á rakarstofu einni á eyjunni Tahiti eru engin tímarit, en aftur á
móti nóg af gíturum svo að viðskiptavinirnir geti leikið nokkur lög,
meðan þeir bíða.
Milwaukee Journal.