Úrval - 01.01.1968, Síða 81
BÚRFELLSVIRKJUN 1918
79
ar önglokinn hefir létt af þrýstingn-
um eða þegar framhjárennsli lok-
ans er opið og forspaðar hverfils-
ins eru lokaðir, þannig að sami
vatnsþrýstingur sé báðum megin á
spjaldi rennilokans. Ef bilun skyldi
verða á önglokanum, má nota renni-
lokann þannig. Báðir lokar eru
knúnir með olíuþrýstingi, sem feng-
inn er úr kerfi hverfilstillanna eða
frá sérstakri dælusamstæöu, sem
komið er fyrir í lokahúsinu. Yfir
lokunum er rafknúinn rennikrani til
setningar og upptöku lokanna.
Frá hverflunum er frárennslis-
vatninu veitt um sográsir, sem eru
steyptar í undirstöður hússins og
liggja út undan því í frárennslis-
skurð stöðvarinnar. Á þeim hluta
rásanna, sem vatnshraðinn er mest-
ur, eru þær fóðraðar stálplötum,
sem hafa kverkjárn áfest inni í
steypunni þeim til styrktar. Vtið
mynni sográsanna eru steyptar gróp-
ir fyrir járnlokur, sem renna má
niður og loka fyrir með bokkkrana,
er rennur á spori yfir rásamynnun-
um. Til að tæma sográsirnar og ná
burtu lekavatni er notuð dæla, sem
komið er fyrir í gengi yfir sográs-
unum eftir endilöngu. Þar er sam-
eiginleg vatnsæð með grein inn í
hverja sográs.
Rafalarnir hafa hver sína segul-
mögnunarvél á ytri enda rafaláss-
ins. Rafalarnir eru tilluktir og
kældir með lofti, sem segulhjól
þeirra soga inn með snúningi sín-
um. Eru settir spaðar í því skyni
utan til á hjólin. Kæliloftið er tek-
ið inn ofarlega um útvegg og leitt
í toftrásum inni í veggnum til sam-
eiginlegrar rásar undir gólfi með-
fram útveggnum endilöngum. Loft-
ið greinist þaðan til hvers einstaks
rafala. Á loftinntakinu er spjald til
að stilla lofttökuna ýmist utan frá
eða innan úr vélasal eða blandað
eftir veðri og sé þess gætt, að raka-
loft að utan komist ekki inn að raf-
ölunum.
Frá rafölunum er upphitaða loft-
ið blásið inn í rásir undir gólfi og
út í loftgöng við efri hlið stöðvar-
hússins og þaðan má ýmist hleypa
því inn í vélasalinn til hitunar eða
út úr stöðinni.
Rafstraumurinn er leiddur í
strengjum eftir heitloftsgöngunum
til spennanna og til raftækjanna í
efri hæðum hússins, en þar eru rof-
ar, safnteinar, yfirspennuhlífar og
annar rafbúnaður. Spennarnir eru
settir við bakhlið stöðvarhússins,
utan við lokahúsið, í bása þar með-
fram endilöngu húsinu. Þaðan má
flytja þá á vagni, er rennur á spori
til verkstæðisins fyrir öðrum enda
en þar er rennikrani yfir til við-
gerða og eftirlits.
Stjórnrúmi stöðvarinnar með stýri
ok mælitækjum og öðrum rafbún-
aði er komið fyrir á annarri hæð
við framhlið stöðvarhússins. Þar er
og símavarzla og samskiptakerfi við
starfsmenn niðri við vélagæzlu.
Fráfaralinur stöðvarinnar eru
teknar út frá efstu hæð um ein-
angra á útveggnum, er hafa hlífð-
arþak yfir vegna snjóskriðs. Kom-
ast má að einangrunum af svölum
neðan við þá.
Járnbrautarspor liggur meðfram
stöðvarhúsinu alla leið inn í verk-
stæðið, þannig að taka má þar
þungavöru af vögnum með renni-