Úrval - 01.01.1968, Blaðsíða 82
80
ÚRVAL
krananum og flytja í sporvögnum
stöðvarinnar hvert sem þurfa kann.
Járnbraut vegna virkjunarinnar.
Um hana segir svo: Virkjun Þjórs-
ár verður til þess að íslenzka ríkið
getur framkvæmt fyrirætlanir sín-
ar um lagningu járnbrautar. Henn-
ar verður þörf, eigi aðeins vegna
þess iðnaðar, sem rísa mun upp um-
hverfis aflstöðvarnar, heldur mun
íslenzkur landbúnaður eflast við
það að fá til afnota ódýran tilbúinn
áburð, bættar samgöngur við
Reykjavík og góða höfn. Það verð-
ur því eðlilegt að fyrirtækin taki
höndum saman við ríkisstjórnina
til að leggja járnbraut.
Það er ekki alveg nauðsynlegt
að leggja slíka járnbraut vegna
virkjunar Þjórsár, af því að álíta
má að bæði Stokkseyri og Eyrar-
bakki geti dugað með nokkrum um-
bótum til uppskipunar á vélahlut-
um og öðru efni til virkjananna, af
því að eigi þarf að halda uppi stöð-
ugri skipakomu, heldur taka inn
vörurnar á þeim tíma árs, þegar
veðurskilyrði eru hægstæðust. Fjar-
lægð þessara staða frá Urriðafossi
er 30 km, þótt krækt sé um um-
ferðamiðstöðina Selfoss, sem senni-
legt er að gert verði. Landið er
flatt og járnbrautarlagning verður
þarna ódýr og fljótgerð. Ef bíða
ætti eftir lagningu járnbrautar til
Reykjavíkur, til að koma upp virkj-
ununum, yrði það til mikilla óþæg-
inda og tafa. Þess vegna er þessi
styttri brautarlagning og umbætur
á nefndum höfnum nauðsynleg. Og
þessa braut geta allar virkjanir í
Þjórsá notað.
Þótt þessi járnbraut sé lögð vegna
virkjananna ætti ekki að vera þörf
á að lagning hennar til Reykjavík-
ur yrði kostuð af þeim, heldur af
iðnaðinum, sem þar verður komið
upp.
Deildarstjóri norsku ríkisjárn-
brautanna, O. Berner, hefur gert
áætlun um kostnað við járnbraut
frá Eyrarbakka um Selfoss að Þjórs-
árbrú 30 km og áfram upp með
Þjórsá til aflstöðvanna þar. Áætluð
sporvídd er 1,06 m (venjulegt
norskt mjóspor), teinaþungi 18 kg
og sömu kröfur um halla og hugs-
að hefur verið á járnbrautinni til
Reykjavíkur, þannig að orðið geti
samstarf beggja þessara brauta. —
Lengd brautarinnar frá Þjórsárbrú
upp til Búrfells með stuttum hlið-
arbrautum til aflstöðvanna er 63
km. Þá eru 32 km áfram að Tungna-
árvirkjun. Þetta er áætlað á sam-
tals 3.909.00 kr. Þar við bætast
hafnarbætur við Eyrarbakka á 491
þús. kr. Samtals 4,4 millj. kr.
Orkuí'lutningurinn. Ráðgert er að
nota 110 kv spennu á öllum línum.
Spennutapið er áætlað 8—14%, að
meðaltali 10%, og orkutapið 6—
9%, að meðaltali 7,5%. í taugar eru
notaðir 70 og 95 mm2 eirstrengir,
lagðir á stálstólpa með 200 m hafi
og með 15 m bili milli stólparaða.
Hver stólparöð er gerð fyrir tvö-
falda línu. Á 1 km bili og í öllum
hornum línanna eru fastastólpar, en
að öðru leyti sterkir burðarstólpar.
Frá Búrfellsvirkjun einni eru
hugsaðar 6 stólparaðir við fyrsta
virkjunarstig með tvöföldum línum,
þ. e. 6x70 mm2 eirstrengjum. Við
fullvirkjun þarf 4 slíkar raðir til
viðbótar. Línukostnaðurinn er áætl-