Úrval - 01.01.1968, Síða 94
92
ÚRVAL
ringulreið í landinu og hófu för
sína til Fyrirheitna landsins? Sem
sönnun á þeim möguleika vitna
sumir biblíufræðingar í Fyrstu
konungsbókina 6. kapitula 1. vers:
„Og þetta skeði á fjögur hundruð
og áttugasta árinu eftir að börn
ísraels komu út úr því landi
Egyptalandi og það var einnig á
fjórða ríkisstjórnar ári Salomons
.... “ Þar sem Solomon ríkti frá
970—930 f. Kr. benda þessar ár-
setningar til þess, að að brottförin
hafi átt sér stað um það leyti, sem
eldgosið varð á Santorini.
í biblíunni segir frá því að Faro
elti ísraelsmenn og drukknaði á-
samt öllum her sinum. Egypzkar
áletranir vitna um þennan atburð.
Galanopoulos telur þetta slys hafa
orsakazt af flóðöldunni, sem varð,
þegar toppurinn á eldfjallinu féll
í sjóinn, en það hefði getað skeð
vikum eða jafnvel mánuðum eftir
að sjálft eldgosið varð og plágurnar
hófust fyrst. Hann bendir einnig á
að hebresku orðin „yam suf“ geti
merkt bæði „rautt haf“, og mar-
hálms (Red See and Reed Sea)
og eru margir lærdómsmenn þeirr-
ar skoðunar, að biblían eigi við hið
síðara. Galanopoulos telur atburð-
inn hafa átt sér stað við Sirbonis
vatnið, salt vatn milli Nílar og Pal-
estínu, og skilið frá Miðjarðarhaf-
inu af mjóum granda. Hann heldur
að ísraelsmenn hafi flúið eftir þess-
um granda „vötn bæði til vinstri
og til hægri“, og hafi þeir verið
þarna á ferð á þeirri stundu, sem
sjór sogaðist út í Eyjahafið en
Egyptarnir hafi síðan lent í endur-
kasti flóðbylgjunnar. Tíminn á
milli þessa útsogs og aðfalls gæti
hafa verið um það bil tuttugu mín-
útur.
Þessi kenning um Brottförina
stendur veikari fótum en kenning-
in um eyðingu Minonska. ríkisins
og menningar þess, eða kenningin
um hvarf Atlantis. Samt sem áð-
ur virðast þessir atburðir hafa
skeð um svo líkt leyti, að það er
erfitt að afgreiða þá staðreynd, sem
hreina hendingu. Þeir falla saman
eins og stykki í gestaþraut. Vís-
indamenn og sagnfræðingar nútím-
ans glíma hart við að finna þann
hlekk, sem vantar, svo að öruggt
megi telja, að vestræn menning sé
risin upp úr eldsúlunni og ösku-
fallinu úr þessu eldfjalli í Eyja-
hafi á stormi þessa sumardags fyrir
3400 árum síðan.
Áhorfandi einn kom alllöngu eftir að cirkussýningin var byrjuð og
tróð sér í sæti sitt með miklum bægslagangi. „Steig ég ofan á þig,
gamli minn?“ . spurði hann, er hann sá, að einn þeirra, sem urðu að
standa upp fyrir honum, gretti sig og yggldi.
„Það hlýtur að hafa verið þér,“ var svarið. „Filarnir eru allir niðri
á sýningarsvæðinu."
Irish Digest.