Úrval - 01.03.1971, Side 14
12
ÚRVAL
urðu að geymast í vatninu, sem
þeir höfðu verið fluttir í til Iqui-
tos, en síðan kæmi vatn úr sjálfu
Amazonfljótinu smám saman í
þess stað. Það varð að ala þá á
sérstakri rækjutegund. Hún varð
að vera þurrkuð, og það varð að
tæta hana í þá. Þannig var reynt
að gera þeim mögulegt að safna
kröftum að nýju.
Aðstoðarmenn Mendez, fjórir
talsins, voru nú önnum kafnir við
að flokka fiska eftir stærð og teg-
und, og láta þá síðan renna varlega
niður í plastgeyma, sem voru um
12 fet á hvorn veg og 10 þumlung-
ar á dýpt. Á þessu stigi málsins
skiptir stærð fisksins mjög miklu
máli. Ef þeir eru of ungir eða litl-
ir, munu þeir ekki lifa af hina
löngu ferð til verzlana í órafjar-
lægð, og þá verður að geyma þá
og ala í fiskageymslunni, þangað
til þeir eru orðnir nógu stórir. En
séu þeir of stórir, er ekki hægt að
flytja nógu marga í geymi, og þá
verður sendingarkostnaðurinn of
mikill til þess, að salan geti borg-
að sig.
Flugsendingar eru teknar til einu
sinni í viku. Sent er í sterkum
pappakössum, sem fóðraðir eru að
innan með plastpokum. Þeir eru
um 15 þumlungar á hvern veg og
8 þumlungar á dýpt. Vissum fiska-
tegundum eru gefin róandi lyf, áð-
ur en ferðalagið hefst. Stundum er
hreinu súrefni dælt í kassana. Svo
er poki og kassi innsiglaður og ek-
ið með hann í flýti til flugvallar-
ins. Fiskar, geymdir á þann hátt,
geta lifað í um 50 stundir. Það tek-
ur 10 tíma að fljúga til Miami í
Floridafylki, sem er helzti dreif-
ingarstaðurinn í Bandaríkjunum.
I vörugeymslum innflytjendanna
í Miami verður að setja fiskana í
nýja poka, dekra við þá á nýjan
leik, ala þá á réttan hátt, gefa þeim
róandi lyf og setja þá í nýja poka
fyrir flugferðina til hins raunveru-
lega sölustaðar. Við þetta vex
kostnaðurinn mjög. — Neontetran
færði þorpsbúum aðeins þriðja
hluta úr centi, en það verður að
selja smásalanum hana á níu cent,
en hann verður síðan yfirleitt að
selja hana á 39—59 cent, eigi hann
að hafa nokkuð upp úr viðskiptun-
um.
í Miami getur maður fengið gott
yfirlit yfir viðskipti þessi, og þá
loks gerir maður sér grein fyrir
því, hversu stór þau eru í sniðum.
Þar hafa stærri innflytjendurnir,
sem eru einnig heildsalar, á boð-
stólum allt upp í 150 tegundir af
vinsælum fiskum frá Suður-Ame-
ríku og einnig slíka dýrgripi sem
fílsranann og rafsteinbítinn frá
Afríku, svarta hákarla með rauðan
sporð og hunangsflugusteinbíta frá
hinum fjarlægari Austurlöndum,
Floridatetrur og jafnvel dvergkol-
krabba. Yfir 350 tegundir eru fá-
anlegar og þar að auki um 40 mis-
munandi fiskabúrjurtir, allt frá
Amazonsverðjurtum til banana-
jurta og sníkjudýra, svo sem „Dul-
arfulla albínóasnigilsins“, sem held-
ur búrunum hreinum með því að
éta allan úrgang. Það fást jafnvel
,,sumarleyfismatgjafartæki“, sem
hægt er að nota, ef maður fer í
sumarleyfi. Tæki þetta lætur rétt