Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
magn . af fæðu falla í vatnið á
hverjum degi í 10 daga.
Röndótti daniofiskurinn (zebra
danio), sem lítur út eins og hann
sé í röndóttum sumarfötum, er lík-
lega fjörugasti hitabeltisfiskurinn,
en kardínálatetran er líklega sá
litríkasti. Englafiskar vekja at-
hygli vegna virðuleika síns. Fisk-
ur sá, er ber heitið „Óskar“, sem
er um átta þumlungar á lengd og
fjórir þumlungar á breidd, er með-
al stærstu hitabeltisfiska, sem
hafðir eru í fiskabúrum á heimil-
um. Tetrur og guppie eru meðal
hinna smæstu.
Það er tiltölulega ódýrt að byrja
á fiskarækt sem tómstundastarfi.
Rúmlega 20 lítra „byrjendageym-
ir“ með dælu, vatnshreinsi og sjálf-
stilltum hitara kostar um 20 doll-
ara. Nokkrar jurtir og steinar kosta
líklega um 5 dollara í viðbót. Sér-
fræðingar mæla með því, að í
hverjum 5 lítrum vatns séu rétt að-
eins yfir tveir ferþumlungar af
fiski, og því væri vel hægt að hafa
10 neontetrur og 1—2 sverðhala-
fiska (kostnaður: um 5 dollarar) í
rúmlega 20 lítra geymi. Um marga
bæklinga og bækur er að velja,
vilji menn afla sér upplýsinga um
eldi hitabeltisfiska og er verð
þeirra allt frá 35 centum upp í 20
dollara.
Milljónum hitabeltisfiska er
klakið út og þeir síðan aldir upp í
búrum, geymum og tjörnum bæði í
stórum stíl í viðskiptaskyni og eins
af þeim, sem hafa slíkt aðeins sem
tómstundastarf. Hvað sumar fiska-
tegundir snertir, er geysilega flók-
ið og erfitt að klekja út eigin hita-
beltisfiskum í stað þess að kaupa
innflutta fiska. Hvað aðrar tegund-
ir snertir, þarf eiginlega ekkert
fyrir fjölguninni að hafa. Sem
dæmi mætti nefna reynslu Amy
Willis í þessu efni, en hún er 15
ára gagnfræðaskólanemi í White
Plains í New Yorkfylki. Hún hefur
þetta að segja um fjölgun fiskanna:
„Nágranni minn gaf mér sex
guppiefiska fyrir nokkrum árum.
Ég gerði ekkert í málinu, og nú hef
ég samt 200 fiska.“
Á matsöluihúsi var borið á borð gamalt og hálfúldið smjör, sem kost-
gangarnir neituðu að borða.
Forstöðukonan spurði, hvað ylli ,því, að þeir neituðu að borða þetta
indæla smjör.
Þá segir einn þeirra:
„Spyrjið þér smjörið að því. Það er orðið nógu gamalt til að svara
fyrir sig sjálft.“
Slúður er líkt og broddfluga. Ef þú getur ekki drepið hana í fyrsta
höggi, er betra að berja ekki neitt.
George Bernhard Shaw.