Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 26
24
ekkert um tilveru náttúrulækninga,
og ég keypti blaðið án þess að hafa
minnstu hugmynd um efni þess.
Lýsingin á astma í greininni var
svo nákvæm lýsing á ástandi mínu,
að ég varð strax móttækilegur fyr-
ir grundvallaratriði þau, sem með-
ferðin byggðist á. Ég gerði mér
ljóst, að ég hafði ekki aðeins verið
að brjóta sérhverja reglu náttúru-
lækninganna, heldur var ég að
margbrjóta þær. Ég skrifaði strax
eftir upplýsingabæklingum og bók-
um til að fara eftir. Ég fylgdi ná-
kvæmlega þeim reglum, sem fyrir-
skipaðar voru. Það var erfitt. Fyrst
losaði ég mig við öll meðulin, og í
nokkur skipti lá við, að ég léti und-
an til að öðlast stundarfrið. Ég
fylgdi í öllu ráðleggingum um lík-
amsæfingar, öndunaræfingar og
vatnsmeðferð, andaði að mér vatns-
gufu og gufu af furunálaolíu, jafn-
framt því að taka þriggja daga
föstu, og síðan neytti ég aðeins
ávaxtasafa, ávaxta og grænmetis-
salata.
Ég var viðbúinn því að mér
mundi mistakast, eða að minnsta
kosti vænti ég mjög hægfara bata.
Ég bjóst alls ekki við því, að ár-
angurinn yrði jafn undraverður og
í ljós kom. Áður en fjórar vikur
voru liðnar, var köstunum farið að
fækka, og ég tók ekki inn nokkur
meðul, jafnvel Cortisone var óþarft,
en fram að þessu hafði ég þurft
að bera á mér kort, sem sagði, að
ekki mætti undir nokkrum kring-
umstæðum hætta að gefa mér Cor-
tisone. Eftir sex vikur í viðbót var
ég næstum hættur að fá astmaköst,
og síðan hef ég aldrei fengið slæmt
ÚRVAL
kast. Tvisvar átti ég erfitt með
andardrátt, stuttan tíma í senn, og
kom mikið slím upp úr mér, en
það var langt frá því, að hægt væri
að kalla þetta slæm astmaköst.
Núna iðka ég á hverjum morgni
tylft líkamsæfinga ásamt öndunar-
æfingum. Á eftir þeim nudda ég
mig með köldu, blautu handklæði,
og síðan þurrka ég mig með því að
nudda mig rösklega með grófu
handklæði. Einu sinni í viku tek ég
mér klukkutíma bað, þar sem hita-
stigið á vatninu er hækkað og
lækkað til skiptis, og í vatnið er
blandað furunálaolíu. Ég fasta þrjá
daga í mánuði, og á eftir er ég
nokkra daga á hreinsandi fæði. Að
öðru leyti borða ég að langmestu
leyti eftir reglum náttúrulækninga-
stefnunnar og leyfi mér örsjaldan
einhver frávik frá þeim. Til morg-
unverðar hef ég ávaxtasafa, ávexti
og graut, til hádegisverðar góðan
skammt af fjölbreyttu hrásalati og
ávexti. Kvöldverðurinn er soðin
eggjahvítumáltíð. Ef ég drekk
súkkulaði eða borða kökur og kex,
er þetta ávallt keypt í náttúru-
lækningabúð þeirri, er ég skipti
við. Ég bragða aldrei venjulegt te
eða kaffi. Ég nota aldrei dósamat
eða verksmiðjuframleiddan mat, og
fæði mitt er saltlaust. Einnig hafna
ég öllum steiktum mat og mat úr
hvítu hveiti og hvítum sykri. Ég
drekk aðeins ávaxtasafa og fíla-
kaffi og einstöku sinnum kakóbolla
eða ovaltine með mjólk út í.
Þar sem ég er mikill matmaður,
þá er það ein regla, sem ég get
ekki fylgt, og það er að borða að-
eins þegar ég er svangur. Ég er