Úrval - 01.03.1971, Qupperneq 30
28
ÚRVAL
vey Littlejohn, kenndi Sydney
Smith.
Sir Sydney hefur hlotnazt sá
frami að verða prófessor og rektor
háskólans. Nú er hann hættur
reglulegum störfum, enda orðinn
78 ára gamall, en hann hefur verið
og er í svo miklu áliti sem rann-
sóknarlögreglumaður, að honum
berast sífellt bréf frá ráðþrota lög-
reglumönnum víðsvegar í heimin-
um. Sérgrein hans er réttarfarsleg
læknisfræði, — sú grein sem brúar
bilið milli þess lagalega og læknis-
fræðilega. Lögreglan safnar vitnum
og öðrum sönnunargögnum, en Syd-
ney Smith og aðrir slíkir gera sín-
ar vísindalegu rannsóknir.
Skömmu eftir að Smith flutti
frá Cairo til Edinborgar til að taka
við störfum þar, kom til hans ung-
ur lögreglumaður, Willie Merrilees,
með vandamál sitt: Það hafði verið
brotinn upp peningaskápur, og eina
sönnunargagnið var dálítil leður-
pjatla, ekki stærri en nögl manns,
en hún fannst á staðnum. Sir Syd-
ney hófst þegar handa við að grand-
skoða piötluna. Meðal annars
skyggndi hann hana með röntgen-
geislum og beitti við hana ýmsum
efnafræðilegum aðferðum.
Loks kvað hann upp úrskurð
sinn: ,.Leðrið er af karlmannsskó,
stærð 9V>. Þetta er svartur skór og
búinn að vera í notkun í um það
bil tvö ár. Skórnir hafa verið smíð-
aðir í Englandi, og nýlega hefur
verið gengið á þeim um kalkborið
svæði.“
Vopnaður þessari vitneskju hófst
Merrilees handa. Hann lagði leið
sína til veitingahúss eins í Edin-
borg, hvar viðsjálverðir náungar
héldu sig tíðum; hann gekk rak-
leitt til þess mannsins, sem hann
grunaði einna helzt og spurði:
„Hvað hefurðu verið að gera þar,
sem kalk hefur verið borið á jörð-
ina?“
„Hjálpa pabba gamla á býlinu
sínu,“ svaraði þorparinn einlæglega.
„Einmitt það,“ sagði Merrilees
snöggt. „Eftir þeim upplýsingum,
sem ég hef frá prófessor Smith er
kannski eins rétt að stinga pabba
gamla inn líka!“ Lögreglumaðurinn
hafði manninn með sér til lögreglu-
stöðvarinnar og sendi skóna hans
til Sir Sydney. Hann kvað upp þann
dóm, að skinnpjatlan væri einmitt
af þessum skóm. Innbrotsþjófurinn
taldi sér ekki fært að mótmæla
þessu og játaði brot sitt og sagði
við lögregluna: „Það er bölvuð
ósanngirni, að einkalíf manns skuli
vera sett undir smásjá!“
Sir Sydney Smith er fæddur í
Roxburg í Nýja-Sjálandi árið 1893,
og er sonur gullleitarmanns. Syd-
ney hóf að stunda nám í lækna-
skólanum í Edinborg eftir að hafa
unnið þrjú ár í lyfjabúð. Enda þótt
hann lyki góðu prófi, kom fyrir at-
vik, sem varð þess valdandi, að
hann lagði ekki út í venjulegt lækn-
isstarf: Eitt kvöld síðla drap ungur
bóndi að dyrum hjá honum og bað
hann að koma heim með sér, þar
sem konan hans lá í barnsnauð.
Smith brá skjótt við, og konan
reyndist vera með háan sótthita, og
hún tók mikið út. Ekki mátti hún
mæla, en hún lauk upp augunum
og rétti fram aðra höndina og greip
í hönd læknisins. Eftir að Smith