Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 40
38
ÚRVAL
möguleiki er aS þakka nýju kerfi,
sem nefnist ÆttleiSslumiðstöð
Norður-Ameríku (Adoption Res-
ource Exhange of North America
. . . ARENA).
Miðstöð þessi var stofnuð á miðj-
um síðasta áratug af Barnavernd-
arráði Ameríku (Child Welfare
League of America) vegna skorts
á fósturbörnum í Bandaríkjunum
og vegna þess, að mjög erfitt
reyndist á hinn bóginn að útvega
sumum fósturbörnum varanleg
heimili. Fæðingum óskilgetinna
barna hafði mjög fjölgað. Þær
höfðu tvöfaldazt frá þyí á fimmta
áratug aldarinngir ,og námu nú 300
þúsundum á ári. 'lfjöldi ættleiðinga
hafði einnig áúfiizf, en framboð
þeirrar tegundar barna, sem meSt
eftirspurn var eftir, fór líka ört
minnkandi. Þar var um að ræða
heilbrigð, hvít stúlkubörn, aðeins
nokkurra vikna eða mánaða göm-
ul. Samtímis því áttu ættleiðingar-
stofnanir í miklum erfiðleikum
með að finna heimili fyrir annars
konar börn, sem flokkuð voru sem
,,óvelkomin“, vegna þess að. þau
voru orðin of gömul (yfir ársgöm-
ul), eða tilheyrðu foreldrum, sem
voru af sitt hvorum kynþættinum
eða báðir af kynþætti, sem var í
miklum minnihluta í landinu (yfir
helmingur barna, sem alin eru af
ógiftum mæðrum í Bandaríkjum
um, er af öðrum kynþáttum en
hvítum eða þá af tveim ólíkum
kynþáttum) eða þá börn, sem voru
líkamlega fötluð.
Er Barnaverndarráðið reyndi að
finna einhverja lausn á þessu tvö-
falda vandamáli, tók það eftir því,
að hin hefðbundnu ættleiðingarað-
ferð var nú sífellt minna notuð, þ.
e. að finna sem nákvæmasta sam-
svörun milli barns og fjölskyldunn-
ar, sem skyldi ættleiða það, þ. e.
bæði hvað snerti trú, þjóðerni, iík-
amseinkenni og efnahagslegt og
menningarlegt umhverfi. Var ekki
hugsanlegt, að það fyrirfyndust
miklu fleiri ættleiðingarforeldrar,
sem mundu fremur taka tillit til
þarfa barnanna en fyrra umhverf-
is þeirra og uppruna, bara ef hægt
væri að ná til slíkra ættleiðingar-
foreldra? Hver yrðu áhrifin, ef
komið væri á laggirnar. eins konar
miðstöð, sem hefði það að mark-
miði að tengja saman munaðarlaus
börn og ættleiðingarfjölskyldur um
gervöll Bandaríkin og Kanada?
Fé til slíkrar tilraunastarfsemi
fékkst frá nokkrum stofnunum, og
skrifstofu var komið á laggirnar
fyrir starfsemi þessa í aðalbæki-
stöðvum Barnaverndarráðsins í
New York. Miðstöð þessi átti að-
eins að starfa sem upplýsingamið-
stöð. Fyrri ættleiðingarnefndir og
stofnanir áttu að halda áfram upp-
lýsingasöfnun, rannsóknarstörfum
og sjálfum ættleiðingunum sem áð-
ur á hinum ýmsu stöðum, og þær
nefndir og stofnanir áttu að taka
lokaákvarðanir í öllum málum.
Miðstöðin átti því ekki að vinna í
beinum tengslum við fjölskyldur
þær, sem ættleiða vildu börn, held-
ur aðeins við ættleiðingarnefndirn-
ar og stofnanirnar á hinum ýmsu
stöðum. Kostnaður skyldi greiddur
af viðkomandi nefnd eða ættleið-
ingarforeldrum. Miðstöðin átti ekki