Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 61
VÍSBENDING FRÁ LÁTNUM
59
DAUÐI FLÆKINGSINS
23. apríl 1963 ók flutningalest að
teinamótum fyrir utan Massillon í
Ohio. Allt í einu sá vagnstjórinn
blossa eins og frá sprengingu og
nam staðar. Það lá brennandi bíll
við hliðina á teinunum. Þegar bú-
ið var að slökkva eldinn fann lög-
reglan skaðbrunnið lík og leifar af
peningaveski, sem Robert Domer
hafði átt. Seinna kom í ljós, að Do-
mer, sem vann við fasteignasölu,
hafði dregið að sér fé og var stór-
skuldugur. Samt var hann líf-
tryggður fyrir 288.000 dali. Hafði
hann framið sjálfsmorð í þeirri
von, að líftryggingin nægði til að
greiða skuldir hans?
Þannig leit það út, en við krufn-
inguna sáu læknarnir, að látni
maðurinn hafði fengið mörg hjarta-
köst. Domer hafði ekki verið hjart-
veikur. Og Domer hafði haft allar
tennurnar heilar, en látni maður-
inn var tannlaus. Dáni maðurinn í
bílnum gat því ekki verið Domer.
Lögreglan hafði loksins upp á
Domer og hann sagði eftirfarandi
sögu: Hann hafði tekið drukkinn
flæking upp í bílinn. Maðurinn,
sem sagðist heita Howard Riddle
fékk hjartakast á leiðinni og lézt.
Domer hafði gripið tækifærið til
að setja sjálfsmorð á svið til að
bjarga sér úr þeim vandræðum, sem
hann var í. Hann hafði lagt bíln-
um efst á hæð, sem lá niður að
járnbrautarteinunum. Síðan hafði
hann hellt bensíni yfir bílinn, hent
eldspýtu inn um gluggann og látið
bílinn renna niður að flutningalest-
inni.
En Domer var kærður fyrir morð
að yfirlögðu ráði. Ákærandinn hélt
því fram, að Riddle hefði verið lif-
andi, þegar kveikt var í bílnum. Að
vísu fannst ekki koliltí í blóði hans,
engin sótkorn í lungunum, ekkert,
sem gat sannað, að hann hefði and-
að nokkrum sinnum, þegar logarn-
ir lukust um hann. Það var aðeins
eitt: raddbönd liksins voru sviðin,
en læknarnir voru ekki sammála
um það, að slíkt gæti bent til þess,
ao hann hefði andað meðan eldur-
inn geisaði. Lögin kröfðust afger-
andi svars — og læknavísindin gátu
ekki veitt það.
Dr. Helpern var kvaddur á vett-
vang og hann réði gátuna. Krufn-
ingin sýndi, að rotnunar var þegar
tekið að gæta í líki Riddles -— en
það sannaði, að hann hefði verið
látinn töluvert löngu áður en slys-
ið var sett á svið. Þar með hættu
menn að hugsa um sót í öndunar-
færunum, kolilti í blóðinu og svið-
in raddbönd. Domer var dæmdur
fyrir svik, fvrir að hafa farið ólög-
lega með lík og ýmislegt fleira, en
ekki fyrir morð.
LÆVÍS DAUÐI
„Það leikur enginn efi á því, að
mörgum er hegnt fyrir morð, þó
að fórnarlömbin hafi raunverulega
dáið eðlilegum dauða," segir dr.
Helpern. Rigningardag nokkurn
hljóp fjórtán ára drengur á hjóla-
skautum í forsalnum að hofróðu
íbúðarhúsi í New York. Dyravörð-
urinn margbað hann um að hætta
þessu, því hann ónáðaði íbúana, en
drengurinn var þrjózkur og ósvíf-
inn og loks rak dyravörðurinn hon-
um kinnhest. Drengurinn féll til