Úrval - 01.03.1971, Síða 64
62
ÚRVAL
erfiðasta verkefni, sem eiturfræð-
ingar verða að etja við.
En hann fann það, sem hann leit-
aði að. í heila hinnar látnu og lifur
hennar fann dr. Umberger sundr-
ingu efnanna eitursins succinylkol-
in og seinna fannst succinylkolin í
vefjunum umhverfis sprautustaðinn
á rassvöðvanum.
Succinylkolin virkar lamandi á
vöðvakerfið og er notað við upp-
skurði, þar sem er nauðsynlegt að
allir vöðvar sjúklingsins séu mátt-
lausir. Það verður að gefa efnið
mjög varlega, því að ella ræðst það
á öndunarfærin og sjúklingurinn
kafnar. Dr. Coppolino var svæfing-
arlæknir og vissi því allt um áhrif
efnisins. Hann var dæmdur fyrir
morð.
Dr. Helpern er stoltur af sinni
stóru og önnum köfnu deild og það
með réttu, því að það eru ekki
margar deildir í heiminum, sem
jafnast á við þessa. Réttarlæknis-
fræði er einhver traustasti þjónn
réttvísi nútímans og innan þeirrar
fræðigreinar er enginn æfðari eða
reyndari en þessi óvenjulegi lækn-
isfræðileynilögreglumaður í New
York.
☆
Ýmsir kaupmenn í bænum okkar gefa stoltum foreldrum nýfæddra
barna smágjafir. Á meðal gjafa þeirra, sem við fengum við fæðingu
dóttur ökkar, var miði, sem íhljóðaði upp á vissan fjölda „inmkaupa-
miða“, sem veittu rétt til ókeypis innkaupa fyrir vissa fjárhæð. Var
miði þessi innleysanlegur á benzínstöð einni í bænum. Strax og konan
min var orðin nógu hraust til þess að byrja að verzla á nýjan leik, ók
hún til benzínstöðvarinnar, framvísaði miðanum og vildi fá benzín-
innkaupamiða út á .hann vegna barneignarinnar. Ungi afgreiðslumað-
urinn, sem var augsýnilega nýr i starfi og þekfcti efcki þessa auglýs-
ingaherferð, varð undrandi á svip, en tók samt við miðanum. Svo kom
hann til baka með benzíninnkaupamiðana og afhenti henni þá brosandi
með svofelldum orðum: „Frú, ég er alltaf jafnhissa á því, hvað kon-
ur vilja á sig leggja fyrir þessa innfcaupamiða."
Donald G. Spencer.
Ef þú gerðir allt, sem þú ættir raunverulega að gera, áður en þú
ferð í sumarleyfisferð, væri sumarleyfinu lokið, áður en þú gætir lagt
af stað.
Beryl Pfizer.
Við eyðum hálfu lífinu í að reyna að skilja eldri kynslóðina, og svo
siðarj helmingnum í að reyna að skilja þá yngri.
Earl Wilson.