Úrval - 01.03.1971, Qupperneq 96
94
ÚRVAL
rauðamæling Sophie?“ Hvenær var
hún framkvæmd? .... Fær hún
nokkurt járnmeðal? .... Hann
gelti þessum spurningum hverri á
fætur annarri. Og það var vissara
að hafa svörin á reiðum höndum.
Ef maður þurfti að fara yfir sjúkra-
skýrsluna til þess að leita að þessu,
starði Ron eitthvað út í bláinn og
lamdi fingrunum í rúmgaflinn, eins
og hann vildi segja: „Hvílíkur fá-
viti er þessi læknakandídat!“ Og
hefði engin blóðrauðamæling far-
ið fram tvær síðustu vikurnar, skip-
aði hann kannske: „Framkvæmdu
hana þá.“ Svo var skipunin skráð
tafarlaust í framkvæmdabókina. Og
svo héldum við að næsta rúmi.
Ég minnist þess, að þegar við
snerum aftur til framenda stofunn-
ar þennan fyrsta morgun, sagði
Ron: „Allt í lagi, strákar. Ég þarf
að fá einn bolla, áður en ég fer
inn á M4.“ Hann flýtti sér til eld-
hússins með þau Eddie og Jean á
hælunum, og ég skundaði síðan á
eftir þeim. Þau settust, og ég
slengdi mér líka á stól. Ron leit
upp og sagði: „Bill, þú hlýtur að
vera fjandi klár kandídat, ef þú
hefur tíma til þess að fá þér kaffi-
bolla. Ég vildi gjarnan verða eftir
hérna svolitla stund og horfa á þig
taka til höndunum. Þú hlýtur að
vera jafnsnar í snúningum og
hvirfilvindur."
Ég roðnaði og ætlaði að rísa á
fætur. Ron hló við og sagði: „Láttu
mig ekki hræða þig. Seztu aftur.
En þú átt margt eftir ólært. Það
er allt og sumt. Þú ert eins og uxi
í stigmyllu, Bill, sem verður að
halda áfram að þramma, svo að
áveituvatnsstraumurinn stöðvist
ekki. En þú veizt það bara ekki
ennþá. Slakaðu bara á, á meðan
þú heldur, að þú hafir efni á því.“
Þetta var í annað sinn sem ég
var skammaður eða fékk aðfinnsl-
ur. Og samt var fyrsti dagurinn
minn í sjúkrahúsinu alveg nýbyrj-
aður.
LYKILL AÐ LEYNDARDÓMI:
HVERNIG LIFA SKAL SJÚKRA-
HÚSÞJÁLFUNINA AF.
Við Eddie fórum svo inn á deild
M4, þegar við höfðum lokið kaffi-
drykkjunni. Og hann sýndi mér,
hvað hann hafði skrifað í „fram-
kvæmdabókina“. Ég man ekki ná-
kvæmlega, hvaða atriði það voru
í þetta skipti. En ég þurfti að búa
í nánu sambýli við þessa bók í
heilt ár, og ég get mjög auðveld-
lega samið hliðstæða síðu með
venjulegri dagsskipan. Hún hefur
getað litið út eitthvað á þessa leið:
1. Athuga blóðrauða og þvag frú
Pica.
2. Finna röntgenmyndir af efra
hluta meltingarvegs frú Lane.
3. Skipta um gipsumbúðir á
Swanson.
4. Taka saum úr Rollins.
5. Framkvæma ristilspeglun á
Flanders.
6. Taka brjóstholsröntgenmynd
af Johnson.
Listinn virðist ekki vera eins
erfiður viðureignar og hann var í
raun og veru. En fyrstu viku mína
í sjúkrahúsinu hefði það líklega
tekið mig mestan hluta dagsins að
framkvæma það, sem á honum stóð.
I fyrsta lagi hefði ég framkvæmt