Úrval - 01.04.1971, Síða 15
...FÓSTUREYÐINGAR
13
tengd slíkum aðgerðum. Þeir eru
sem sé hræddir um, að sumar kon-
ur mundu einfaldlega láta fram-
kvæma þessa aðgerð á sér, vegna
þess að það yrði auðvelt að fá hana
framkvæmda og vegna þess eins,
„að þetta væri ósköp venjulegur
þáttur hins daglega lífs“, þ. e. við-
tekin venja.
Dr. Sanford Wolf, sem starfaði í
þrjú ár sem sálfræðilegur ráðgjafi
kvenna, sem fóru fram á fóstur-
eyðingu við Johns Hopkinssjúkra-
húsið, tekur sem dæmi sumar ung-
lingsstúlkur, sem vilja í rauninni
ala börn sín en sækja um leyfi til
fóstureyðingar vegna þrábeiðni
mæðranna. Læknar hafa komizt að
því, að konum þeim, sem aðrir hafa
talið á eða þvingað til að láta fram-
kvæma fóstureyðingu, hættir frem-
ur til að verða fyrir andlegu áfalli
á eftir en öðrum konum.
Dr. Abraham Heller, sállæknir
við Almenna sjúkrahúsið í Denver,
minnist móður einnar á fimmtugs-
aldri, sem varð þunguð, þegar
yngsta barnið hennar var orðið 12
ára. Hún sótti um leyfi til fóstur-
eyðingar, en í samtali við sálfræð-
ing lýsti hún yfir því, að í rauninni
vildi hún ala barnið, vegna þess
að henni fyndist sem hennar yrði
ekki lengur þörf, þar eð öll börn-
in væru að verða uppkomin. Dr.
Kaufman varar hverja konu við því
að ákveða að láta eyða fóstri „nema
hún sé alveg viss um, að hún vilji
það í raun og veru“. Margir læknar
leggja til, að jafnvel þótt konan og
læknir hennar séu látin um að taka
slíka ákvörðun, ætti hún samt að
ræða við sálfræðilegan ráðgjafa,
' -----------------------------------------
UM RITSTÖRF
• Ég held ég geti stært mig
af því með öllu mínu hóf-
lausa sjálfsáliti að vera ó-
lærðasta og ófróðasta kona,
sem nokkurn tíma dirfðist að
gerast rithöfundur.
Jane Austin.
• Ég hef ævinlega talið bezt,
að skrifa án samverkamanns.
Þegar tveir einstaklingar
skrifa sömu bókina, heldur
hvor um sig, að hann fái all-
ar áhyggjurnar og einungis
helminginn af höfundarlaun-
unum.
Agatha Christie.
,—'
• Ég er ósköp kjánalegur í
sambandi við bókina mína. Ég
á eintak af henni, sem ég er
alltaf að lesa og mér finnst
ákaflega fræðandi. Swift hef-
ur gert svipaða játningu í
sambandi við sínar ritsmíðar.
W. B. Yeats.
--------------------------------------------/