Úrval - 01.04.1971, Side 16
14
ÚRVAL
áður en aðgerðin ér framkvæmd.
Hver ætti að taka hina endan-
legu ákvörðun? Sir Dugald Baird,
skozkur fæðingarlæknir og kven-
sjúkdómafræðingur, sem hefur 27
ára reynslu á sviði fóstureyðinga,
hefur þetta að segja: „Eftir því sem
tímar liðu, varð ég sífellt sannfærð-
ari um, að konan sjálf er venjulega
færust um að dæma um það, hvort
binda eigi endi á þungun eða ekki.“
Fóstureyðing er ekki þess eðlis,
að slíku eigi að taka léttilega, jafn-
vel þótt engar siðferðilegar né laga-
legar hindranir standi í vegi fyrir
því, að konan láti framkvæma fóst-
ureyðingu. Augsýnilega er það ekki
eins sársaukafullt, hvorki líkamlega
né andlega að hindra heldur getnað
barns, sem ekki er óskað eftir. Og
þar að auki er það mun ódýrara.
Kona, sem vill forðast þungun, ætti
að ræða málið við lækni sinn eða
stofnun eins og Fjölskylduáætlana-
miðstöðina eða ráðgjafarþjónustu
um fjölskylduáætlanir á næsta
sjúkrahúsi og fá þar góð ráð um
getnaðarvarnir.
Fátæks manns festi hefur marga hlekki.
Islenzkur málsháttur.
Maður sem er of góður fyrir iheiminn er gagnslaus fyrir konuna sina.
Jiddískur málsháttur.
Þið kynnizt hvort öðru í þrjár vikur, elskið hvort annað í þrjá mán-
uði, berjist i þrjú ár og umberið síðan ástandið í þrjátíu ár.
André de Missan.
Tónlistin við brúðkaupsmarsa minnir mig ailtaf á hermenn sem eru
á leið til orrustu.
Heirich Heine.
Ef þú ert ihræddur við einveru, þá skaltu ekki ganga í hjónaband.
Anton Tsékov.
Ástin er hugsjón, hjónabandið er raunveruleiki. Að rugla saman
hugsjónum og raunveruleika ihefnir sín alltaf.
Goethe.
Aðeins að svo miklu leyti sem einstaklingurinn er hamingjusaimlega
giftur sjálfum sér, er hann hæfur til hjónabands og fjölskyldulífs.
Novalis.