Úrval - 01.04.1971, Side 36
34
URVAL
ingur fyrir miðju myndarinnar. Til
vinstri er dauðinn en til hægri lífs-
sýnin, en í toppi þríhyrningsins er
höndin, sem heldur á hinu lifandi
ljósi.
Þessar tvær myndir, „Kvöldmál-
tíðin“ og „Guernica", sem kannski
eru hver um sig mestu meistara-
verk sinnar aldar, eru ótrúlega lík-
ar. Þær spegla báðar mannkynið
allt, örlög þess og harma.
Pablo Picasso er án efa umfangs-
mesti málari okkar tíma og enginn
hefur haft slík áhrif á myndun nú-
tímalistar sem hann.
Fyrir nokkrum árum birtist í einu
dagblaðanna grein eftir Picasso sem
hafði yfirskriftina „Það sem lífið
hefur kennt mér“.
Þessi litla grein bregður skemmti-
legu ljósi á þennan listamann, hugs-
anir hans og afstöðu, en þar segir
Picasso:
„Landslagsmyndir mínar eru ná-
kvæmlega eins og nektarmyndir
mínar og kyrralífsmyndir; en fólk
sér, að nefið á andlitunum er „vit-
laust“, .en aftur á móti er ekkert
við brýrnar, sem kemur því úr
jafnvægi. En ég gerði þetta „vit-
lausa nef“ af ásettu ráði. Ég gerði
það, sem nauðsynlegt er til að
neyða fólk til að sjá nef.
Seinna sá það — eða mun sjá —•
að nefið er alls ekki „vitlaust". Ég
var að koma í veg fyrir, að það
sæi aðeins „dásamlegt samræmi"
eða „frábæra liti“.
Það er ekki til nein abstraktlist.
Það verður alltaf að byrja á ein-
hverju. Seinna er hægt að fjar-
lægja öll merki um raunveruleik-
ann: Þá er hvort eð er engin hætta,
vegna þess að hugmynd fyrirmynd-
arinnar hefur skilið eftir óafmáan-
leg merki.
Hún er það, sem kom listamann-
inum af stað, eggjaði hugmyndalíf
hans og vakti tilfinningar hans.
Hugmyndir og tilfinningar verða
að lokum fangar í verki hans; hvað
sem þær gera, geta þær ekki flúið
myndina; þær eru óskiptur hluti af
henni, jafnvel þegar nærvera þeirra
er ekki greinanleg.
Það er ekki hægt að framkvæma
neitt án einveru. Ég hef skapað mér
eins konar einveru, sem enginn
verður var við. Það er mjög erfitt
að vera einn nú á tímum, vegna
þess að við eigum úr. Hafið þið
nokkurn tíma séð dýrling bera úr
á sér?
Allir reyna að skilja list. Hvers
vegna reynir enginn að skilja
fuglasöng? Hvers vegna elskum við
nóttina, blómin og alla fegurðina
umhverfis okkur, án þess að hafa
löngun til að skilgreina leyndar-
dóma þeirra?
En þegar um listaverk er að ræða,
heimtar fólk að skilja það. Hvers
vegna?
Ef fólk vildi aðeins skilja, að
listamaður skapar, vegna þess að
hann verður að skapa, vegna þess
að hann er gagntekinn af list sinni.
Listamaðurinn er aðeins mjög lít-
ill hluti af alheiminum og ætti ekki
að vekja meiri athygli en hvað
annað á jörðinni, sem veitir okkur
fegurð, gleði og fullnægju.
Ég mundi aldrei ætlast til þess,
hvernig sem litið er á myndir mín-
ar, að nokkur gæti orðið fyrir sömu
tilfinningareynslu og ég varð fyrir.