Úrval - 01.04.1971, Page 46
44
ÚRVAL
ÞAR SEM AUSTRIÐ OG VESTRIÐ MÆTAST
45
og er svo stórfengleg, að hún hef-
ur fengið viðurnefnið Tyrknesku
Versalir.
Nú tekur báturinn snögga beygju
stjórnborðsmegin á móti straumn-
um yfir til Uskiidar, stærsta hverf-
is Istanbul á Asíuströndinni.
Úskudar með rauðu þökunum var
stofnuð af Aþenumönnum fyrir
meira en 25 öldum síðan og kölluð
Chrysopolis. Hérna settu þeir á
stofn fyrstu tollstöðina í heimi, til
þess að hirða tolla af Svartahafs-
verzluninni. En frægust er úskúd-
ar fyrir stóru, gulu, ferköntuðu
Selimiye hermannaskálana, þar
sem Fyrsta Herdeild Tyrkja er til
húsa. Hér hóf Florence Nightingale
starf sitt, meðan á Krímstríðinu
stóð, sem brautryðjandi í nútíma
hjúkrun.
Nú snýr skipið við og fer aftur
yfir sundið og inn í Bebek-flóa, þar
sem úir og grúir af bátum, lysti-
skipum og fólki á vatnsskíðum.
Bebek er aðalútborg Istanbuls, og
sú fegursta, og hefur lengi verið
eftirsóttur staður fyrir erlenda
ferðamenn. Höfnin þar er hálf-
hringur þéttsetinn úti-veitingastöð-
um, þar sem Tyrkir og erlendir
ferðamenn snæða og dansa fram
eftir kvöldum.
Skipið stefnir enn yfir sundið og
fer fram hjá Kúcúksu, en sögur
herma að á beim stað hafi Ottoman
prinsessurnar átt stefnumót við
leynilega elskhuga sína. Síðan
brunum við áfram til Anatolu His-
ar, sem er fiskiþorp við þrengsta
kafla Bosporus. Darius konungur
mikli leiddi fyrstu persnesku her-
deildirnar yfir til Evrópu á þessum
stað árið 513 f. K. — á fílum yfir
bátabrú. Einnig er álitið, að fyrsta
krossferðin, sem farin var árið
1097, hafi komið við hér á leið til
Landsins Helga.
Það tekur ekki nema átta mín-
útur að skjótast tilbaka yfir Bos-
porus til Rumeli Hisar vígisins i
Þrasíu. Þrír rammbyggðir sívalir
turnar eru stoðir þessa sex hæða,
óreglulega lagaða vígis. Mannvirki
þetta lét Ottoman sultaninn Meh-
met Sigurvegari byggja af þúsund-
um múrara og verkamanna á að-
eins 92 dögum. Frá þessum bæki-
stöðvum hafði hann Bosporus á
valdi sínu með fallbyssum, og hóf
sigursæla árás á Konstantinopel ár-
ið 1453.
Ofar á sundinu er Emirgan, en
þar er Poets Park (skáldagarður-
inn) fremstur af ótal úti-veitinga-
stöðum meðfram hafnarbakkanum.
Beint á móti Emirgan er Kanlica,
heillandi og friðsælt austurlenzkt
smáþorp, þar sem menn láta dag-
inn eða alla ævina líða við keyif,
þá fornu austurlenzku list að sitja
hreyfingarlaus við einbeitingu hug-
ans í sálarró. Þegar komið er fram
hjá síðustu lendingarstöðum skips-
ins við Rumeli Kavak og Anadolu
Kavak má sjá nokkur einangruð
fiskiþorp og síðan þriggja mílna
breitt grýtt mynnið þar sem Bos-
porus tengist Svartahafinu.
Harðir straumar, ótal snarpar
beygjur og mikil skipaferð orsaka
óhjákvæmilega árekstra milli skipa
á sundinu, oftast í þoku eða að
næturlagi. Þess vegna er tankskip-
um og stórum flutningaskipum ráð-
lagt að sigla aðeins að degi til um
fjölförnustu kaflana, og með tíu
mílna hámarkshraða. Skipin hag-
nýta sér straumana með því að
sigla norður Evrópumegin en suð-
ur meðfram Asíuströnd. Þetta ger-