Úrval - 01.04.1971, Side 66
64
ÚRVAL
merkis um, að hann mætti halda
áfram.
Klukkan átta hringja klukkur
Angelusar og lögregluþjónarnir
loka landamærahliðinu og setja
slagbranda fyrir það. Nú lifnar
miðborgin í Macao aftur við eftir
iangt, drungalegt síðdegið. Þúsund
götusalar upphefja sinn gjallandi
söng, og rökkvaðar göturnar troð-
fyllast af fólki. Snyrtileg torg
breytast í iðandi sölutorg. Berfætt-
ir burðarkarlar, berir niður að
mitti, skjögra undir ótrúlega þung-
um byrðum sínum. Það kveða við
sprengingar flugelda og ilmur frá
ilmspýtum fyllir loftið. Það heyrist
klukknahljómur, og alls staðar
glymja útvarpstækin og ósam-
hljóma tónar og söngl Kantonóper-
unnar berast út í kvöldhúmið. Á
iðandi Avenida Almeira Riberro,
helztu verzlunargötu borgarinnar,
prútta gestir frá Hong Kong í
fjölda örlítilla, troðfullra verzlana.
Þar eð þetta er fríhöfn, eru verðin
geysilág, og allar hillur eru fullar
af japönskum myndavélum, sviss-
neskum úrum, frönskum ilmvötn-
um og glitrandi silkiefnum frá
Shanghai. Þar getur líka að líta til-
skorna demanta, dýrmæta steina og
muni úr jaði og rafi og dýrlegt
víravirki úr skíragulli.
Einn helzti hyrningarsteinn vel-
gengni Macao er einmitt gullið. Þar
eð Portúgalar skrifuðu ekki undir
Bretton Woods samninginn um
skipulag og eftirlit með gullverzl-
un um víða veröld, verzlar Macao
löglega og hindrunarlaust með
þennan gula málm. Innflutningur
gulls nemur þar allt að 53 tonnum
á ári. Gullið er selt fyrir opnum
tjöldum í bönkum á 46 dollara og
46 cent únsan að meðaltali (fast-
ákveðið heimsmarkaðsverð er aftur
á móti 35 dollarar). Næstum 100%
þessa gulls er smyglað frá Macao.
Sumt kemst augsýnilega til Kant-
on, þar sem það á sinn þátt í að
gera Kínverjum kleift að sniðganga
viðskiptatakmarkanir Bandaríkj-
anna gagnvart Rauða-Kína. Þar eð
greiðslur í gulli skilja ekki eftir
nein sönnunargögn og ómögulegt
er að rekja þær, er hægt að nota
það til þess að breiða yfir leyni-
legan innflutning Rauða-Kína á
nýjustu vísindatækjum og vélum
vestrænna ríkja.
„SPILLTASTA BORGIN"
Rauða-Kína er þarna rétt við
bæjardyrnar, og návist þess er ætíð
auðfundin og' oft ógnvænleg. Þar eð
Portúgal viðurkennir ekki Alþýðu-
lýðveldið Kína, hefur Macao engin
bein tengsl við þannan öfluga ná-
granna sinn. Ef einhver vandamál
skapast, sendir nýlendustjórinn,
José Nobre de Carvalho hershöfð-
ingi, samningamenn með leynd til
Kanton til þess að semja um sam-
komulag, sem báðir aðiljar geti
nokkurn veginn unað við. Ástandið
líkist helzt línudans í fjölleikahúsi.
í gegnum Macao fara um 300.000
Kínverjar til og frá Rauða-Kína ár-
lega, þar á meðal stöðugur straum-
ur njósnara, þjálfaðra undirróðurs-
manna, og jafnvel skemmdarverka-
manna. Fyrir stríð var Macao helzti
keppinautur Shangai gömlu um tit-
ilinn „spilltasta borg Austurlanda“.
Þar úði og grúði af ópíum- og fjár-