Úrval - 01.04.1971, Side 123
HAFÐU STJÓRN Á SKAPINU
121
atriði, sem koma til greina: 1) að
komast að raun um, hvað reiðinni
veldur; 2) að veita reiðinni útrás
á skaplegan hátt; 3) að forðast þær
aðstæður, sem helzt geta valdið
reiði; 4) að sigrast á, eða beina reið-
inni í aðra farvegi.
Þegar þér er runnin reiðin, skaltu
fá þér sæti og íhuga hvað reiðinni
hafi valdið. Minnstu þess, að það
er ekki víst að hún hafi gosið upp
á stundinni. Hún getur stafað af
einhverju, sem gerðist í gær eða
fyrir viku eða jafnvel fyrir einum
mánuði síðan. Og við þessa sjálfs-
rannsókn skaltu athuga það fyrst,
sem beinast liggur við.
Algeng orsök geðvonzku er hung-
ur. Foreldrar hafa tekið eftir því,
að börnum hættir meira til að reið-
ast fyrir máltíðir. Þetta á einnig við
um fullorðna. Því er það, að margir
gleypa í sig matarbita, þegar þeir
verða þess varir, að farið er að síga
í þá, samkvæmt þeirri kenningu að
aukin orka hjálpi til að vinna bug
á reiðinni.
Þreyta veldur líka oft geðvonzku.
Börn eru uppstökkari, þegar þau
koma úr skólanum; karlmenn missa
fremur stjórn á sér, þegar líður að
kvöldi, og kvenfólk er skapstygg-
ara eftir erfiðan dag á heimilinu.
Við þess konar skapstyggð er bezta
ráðið hvíld og afslöppun.
Stundum stafar geðofsi af kyn-
ferðisorsökum. Mönnum og konum,
sem ekki hafa náð jafnvægi í kyn-
lífi sínu, hættir við áköfum geðs-
hræringum. Stöðug sálræn þensla
og vanlíðan getur oft brotizt út í
reiðiköstum.
Stundum liggur orsökin í starf-
inu, einkum ef það er lýjandi og
krefst mikillar nákvæmni. T. d. fer
orð af því, að óperufólk, leikarar,
úrsmiðir og vísindamenn séu öðr-
um fremur uppstökkir. Sama er að
segja um vissa læknisfræðinga, sem
vinna daglega vandasöm og þreyt-
andi störf.
Enn ein algeng orsök bráðlyndis
er ófullnægður metnaður. Ef þér
leikur mjög ákaft hugur á ein-
hverju, sem þér getur ekki hlotn-
azt, veldur það þér vonbrigðum.
Athugaðu því vandlega þrár þín-
ar og dagdrauma, þegar þú rann-
sakar sjálfan þig.
Fyrir marga er reiðin þó aðeins
neyðarúrræði til þess að vekja á
sér athygli og knýja aðra til þess
að taka tillit til sín. Eiginmaður,
sem hefur konuríki, æsir sig upp
til þess að sannfæra sjálfan sig um,
að hann sé enn húsbóndi á sínu
heimili; og vanrækt eiginkona
stekkur upp á nef sér til þess að
minna eiginmanninn á tilveru sína.
Menn geta jafnvel komizt í æs-
ing af eintómum leiðindum. Hjón í
Denver voru nýlega kölluð fyrir
rétt vegna slagsmála. Þau sögðust
bæði vera friðsöm og ástúðleg hvort
við annað að jafnaði, en þau mættu
til að rífast hressilega á nokkurra
vikna fresti. ,,Það er tilbreyting í
því að reiðast," sagði maðurinn,
„það hressir okkur og fjörgar.“
Annað atriðið í baráttunni við
reiðina, var að veita henni útrás á
skaplegan hátt. Barnið bítur og
slær og grýtir öllu í gólfið, sem
hönd á festir. Margir fullorðnir
hafa þessa sömu tilhneigingu til að
brjóta og bramla. Þeir skella hurð-