Úrval - 01.04.1971, Side 124
122
ÚRVAL
um og sparka um húsgögnum.
Þegar Myrna Loy reiðist, spark-
ar hún í íótskemil þar til henni
rennur reiðin. Veronica Lake hefur
alltaf gömul föt handbær, sem hún
skeytir skapi sínu á, þegar hún
finnur blóðið stíga til höfuðsins. Og
þegar seig í Winston Churchill,
tuggði hann ákaft sinn fræga vindil.
Stundum sjatnar reiðin við að
spjalla um hlutina við einhvern. Ef
þig skyldi langa til að sparka í litlu
systur eða snúa pelabarnið úr háls-
liðnum, gæti verið gott að útlista
það fyrir góðum vini, því að hann
gæti ef til vill komið þér í skilning
um hvað að væri og hvernig ætti
að bæta úr því.
Sumum er fróun í því, að beita
ímyndunaraflinu. Dinah Shore ritar
skammarbréf, sem hún aldrei læt-
ur í póst. Þegar hún hefur lokið
bréfinu, undirritar hún það, lætur
það í umslag og lokar því og brenn-
ir síðan umslaginu. „Á þennan hátt
verður reiðin mín að reyk,“ segir
Dinah.
Þriðia atriðið er að forðast þær
aðstæður, sem getur espað til reiði.
Reiðin er smitandi. Reiður kaup-
maður æsir skap búðarstúlkunnar;
reiður eiginmaður fer í taugarnar á
eiginkonunni; hjá reiðum kennara
fyllist kennslustofan brátt af önug-
um nemendum.
Fordæmi foreldranna er einnig
mikilsvert, því að þegar börnin sjá
foreldrana koma fram vilja sínum
með skapvonzku, reyna þau auð-
vitað sömu aðferð. Margir foreldr-
ar reita börnin óafvitandi til reiði.
Þau velja handa þeim svo marg-
brotin leikföng, að þau skilja ekk-
ert í þeim; þeir þröngva börnun-
um í vandasamar, félagslegar að-
stæður. Afleiðingin verður sú, að
börnin gefa reiðí sinni lausan taum.
Fjórða atriðið í meðhöndlun reið-
innar var, að beina henni í annan
farveg. Stundum má gera það með
kímilegum orðum eða tilburðum,
sem vekja hlátur. Jafnvel gamla
aðferðin, að telja upp að tíu, getur
gert sitt gagn. Svo einföld sem hún
er, veitir hún svalandi frest. Reið-
in nær fljótt hámarki sínu. Að telja
er ópersónuleg, sjálfvirk og róandi
aðferð, reist á þeirri einföldu til-
gátu, að ein geðhrif hljóti að út-
rýma öðrum.
Öllum er ljóst, að það er ekki
auðvelt að stjórna skapi sínu. En
sá, sem af alhuga vill það, hann
getur það. Og að játa fyrir sjálf-
um sér, að reiðin sé til andlegs og
líkamlegs hnekkis, er fyrsta — og
þýðingarmesta — skrefið til sjálfs-
stjórnar.
☆
Ef þér er það lifsnauðsyn að ræða vandamál þín, skaltu ekki angra
vini þína með því að neyða iþá til að hlusta á þig. Skýrðu óvinum þinum
frá þeim, því að þeir munu verða himinlifandi yfir að heyra þau.
Irish Digest.