Goðasteinn - 01.03.1964, Page 29

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 29
Haraldur Guðnason: [lilllur llilds Erlendssonar lirepiisljóra í Dúfu á Lamli Erlendur var maður nefndur, Jónsson. Hann var fæddur 23. maí 1777 í Helli. Jón, faðir Erlendar, var sonur Odds bónda í Ketilhúshaga, bjó fyrst í Helli, þá í Vetleifsholtshelli í Holtum og loks í Litla-Klofa á Landi frá 1806. Jón var fæddur 1745, en andaðist 22. maí, 1820. Er ætt þessi rakin til Oddaverja. Móðir Jóns var Steinvör Jónsdóttir í Bolholti, Þórarinssonar. Kona Jóns Oddssonar var Halldóra, fædd 2. sept. 1742 á Rauð- nefsstöðum, d. 15. des. 1837, Halldórsdóttir (1712-1791), bónda á Rauðnefsstöðum, síðast bóndi á Tjörvastöðum í aldarfjórðung, Bjarnasonar á Víkingslæk. Kona Halldórs var Valgerður (1711- 1785) Þorsteinsdóttir frá Rauðnefsstöðum, Sigvaldasonar í Múla- koti í Fljótshlíð. Erlendur hóf búskap í Lindarbæ um 1797. Frá Lindarbæ fluttist hann að Litla-Klofa á Landi, en síðast bjó hann í Þúfu þar í sveit. Hann andaðist árið 1839. Erlendur kvæntist árið 1797 Ing- veldi Gísladóttur, sem fædd var í Lindarbæ árið 1776, Þorvarðs- sonar í Sandhólaferju í Holtum (f. 1698), Guðmundssonar í Stúf- holti, Jónssonar. Þau hjón, Erlendur og Ingveldur, áttu 9 börn. Var Oddur í Þúfu, sem nokkuð verður frá sagt í þætti þessum, þeirra yngstur. Meðal barna þeirra var Valgerður (f. 1798), er átti Ólaf á Ægissíðu, Sigurðsson. Þeirra sonur var Ólafur bæjarfulltrúi í Reykjavík, faðir Ólafs fríkirkjuprests, Sigurþórs smiðs, frú Ólafíu á Fellsmúla og þeirra systkina. Er mikill ættleggur frá Valgerði. Jón hét sonur Erlends bónda. Hann bjó á Ormsvelli í Hvol- hreppi. Sonur hans var Tómas bóndi í Miðhúsum, fæddur 14. júlí 1850, d. 31. des. 1889. Kona Tómasar var Sigurlaug Sigurðar- dóttir frá Móakoti í Garði. Þau hjón áttu margt barna, en flest Goðasteinn ?~7

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.