Goðasteinn - 01.03.1964, Side 43

Goðasteinn - 01.03.1964, Side 43
á bréfum. En líklegt má telja, að fundum þeirra hafi borið saman. Jón forseti fór austur í Landsveit til að skoða Heklugosið 1845. I fylgd með honum var Hoppe stiftamtmaður. Var nokkur straum- ur ferðamanna austur þeirra erinda. Árni Helgason í Görðum segir í einu bréfa sinna: „Heklugosið .... dregur að sér alla upplýsta menn úr kaupstöðum vorum og suma tvisvar, svo bændur eystra eru farnir að kveina undan átroðningnum, enda þykir þeim ekki tilefni til lystiferða, þegar bjargræði þeirra er að eyðileggjast.“ Finnur, sonur séra Jóns Torfasonar á Stóruvöllum (Finnur á Kjörseyri), segir svo frá komu forsetans austur á Land: „Margir ferðamenn komu þá að Stóruvöllum til að skoða gosið. Sérstak- lega man ég eftir Jóni forseta Sigurðssyni .... Móðir mín varð að taka á móti gestum. Staðnæmdust þeir stiftamtmaður og Jón Sigurðsson í bæjardyrunum og tók ég þá vel eftir klæðnaði þeirra. Jón var í bláum jakka og í svörtum buxum og vatnsstígvélum; með „blankhatt“, sem þá voru algengir og lengi síðan. . . .“ Aug- ljóst er, að koma forsetans hefur verið mikill viðburður í sveitinni. Oddur segir einnig frá þessari ferð Jóns og stiftamtmanns austur á Land í dagbók sinni um gosið: „Þriðjud. 30. sept. var hvass vindur á útnorðan og nærri frostlaust . . var sólskin og snjór bráðinn af fjöllunum; eldurinn var við sama. Þennan dag skoðuðu þeir stiftamtmaður v. Hoppe, Jón kandidat Sigurðsson og séra Jón Torfason á Stóruvöllum eldhraunið, sem stóð við sama, nema það var að hækka.“ Þótt ævi Odds í Þúfu yrði ekki löng, lifði hann þó tvo mikla jarðsögulega atburði í héraði sínu: Gosið í Eyjafjallajökli 1822, hið síðasta, og Heklugosið 1845, sem fyrr getur. Fyrra gosið hefur hann tæpast munað, þá aðeins fjögra ára, en um Heklugosið skráði hann ítarlega frásögn. - Handrit og handritabrot Odds eru 6, sem vitað er um, en lik- legt er, að eitthvað hafi glatazt. Handritin eru varðveitt í Lands- bókasafni, utan eitt, sem er í minni vörzlu enn um sinn. Öll bera þau vitni um staka vandvirkni skrásetjarans. Flest eru þau með skrifletri, þó ekki öll. Skal nú gjörð nokkur grein fyrir hand- ritasafni Odds: Próf. Þorvaldur Thoroddsen byggir frásögn sína af Heklugosinu Goðasteinn 4i

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.