Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 48
ástur hefur hann orðið af Hekluriti sínu og oft til þess vítnað.
Þorvaldur Thoroddsen getur þess t. d. í Landfræðisögu (III, 20)
og hinu mikla verki sínu Die Geschichte der Islándischen Vulkane
(Kh. 1925). Tekur hann þar kafla úr riti Odds, lítið eitt breyttan,
um upphaf eldsumbrotanna. I sögu Islendinga í Vesturheimi (I, 32)
er vitnað í rit Odds, þar sem segir, að salt hafi komið upp með
gosinu, og reynzt gott til neyzlu. -
Handrit Odds um Heklugosið í Landsbókasafni er í JS 422 4to.
Það er 53 bls. þéttskrifaðar, geymt í safni af skýrslum um eldgos
1580-1860, 16 hefti alls, en framanvið er „Oversigt over de isl.
Beretninger om Vulkanudbrud“, eftir Jón Sigurðsson forseta;
handritin öll úr safni Jóns.
Stafsetning Odds er allfjarri því, er nú tíðkast; í henni er fullt
samræmi og liggur nærri framburði. Ritgjörðinni fylgir mynd, sem
Oddur hefur teiknað af Heklu. Tveir eldstólpar gjósa upp úr
fjallinu, en hraunstraumar renna niður hlíðarnar. Sést greinilega,
hvar hraunflóðið rennur framhjá gamla Næfurholti.
Nafnið á ritinu er ærið langt, ef tileinkunin er látin fylgja
með:
„Dagskrá um Heklugosið 1845-6 og Afleiðingar þess.
Rit þetta dirfist ég að Tileinka Herra Finni Magnússyni Doktóri
í heimspekji, Etazráði, Prófessóri og Leindarskjalavörði, Riddara
af Dannebroge og Dannebrogsm. m. m. með auðmíkt og virðingu.
Oddur Erlendsson.“
Ekki hafa fundizt nein bréf uppá það, að þeir hafi haft nokkur
samskipti á ævinni, hinn virðulegi og hálærði prófessor í kóngsins
Kaupmannahöfn og bóndinn í Þúfu. Þó gæti verið, að bréf hafi
farið milli þeirra, en um nánari kynni er varla að ræða. En báðir
voru fræðimenn, hvor á sinn hátt, enda ólík aðstaða og ævikjör.
Oft verður þess vart í ritum Odds, að lærdóm og menntun dáir
hann af heilum huga. Og vafalítið má ætla, að hann hafi stundum
þótzt illa fjarri þeim fræðabrunni, sem þá var aðeins að finna
handan úthafs.
Finnur próf. Magnússon mun án efa hafa haft áhuga á eld-
gosasögu landsins. Líklegt er, að Oddur hafi um það vitað. Finnur
hefur fylgst með þessum mikla náttúruviðburði á íslandi af alhug,
46
Goðasteinn