Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 49

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 49
skrifaði sjálfur um gosið og safnaði gögnum (JS 103 fol., nú í Lbs.*)) Lætur nærri, að Oddur hafi ætlað að senda Finni handrit sitt tii Khafnar, ef til vili til prentunar. - En hafi svo verið, fór á aðra lund, því Finnur andaðist á aðfangadag jóla 1847, 66 ára að aldri. Oddur lýkur raunar ekki við frásögn sína, fyrr en í vordögum 1847, en fregnin um lát Finnst hefur varla borizt fyrr en með vorskipi, Undir ritgjörð Odds stendur að vísu: Þúfu á Landi 1848, en ártalið getur hafa verið sett allöngu eftir að henni var lokið. Tileinkunin bendir til þess, að Finnur hafi verið á lífi, er hún var skrifuð. - Um feril Heklurits Odds segir Finnur frá Kjörseyri í minn- ingum sínum (Þjóðhættir og ævisögur, Ak. 1945), að Magnús bróðir sinn, bóndi og formaður í Junkaragerði hafi eignazt handritið, en látið það af hendi við Halldór Kr. Friðriksson yfirkennara, handa Jóni Sigurðssyni. Ég ætla, að hér kunni að vera málum blandað. Ég hef það eftir traustri heimild, að kunnur læknir hafi fengið ritið lánað, og frá honum hafi það farið til Jóns. En þetta skiptir raunar ekki máli nú, því Heklurit Odds er komið heim. Annað eldrit, sem Oddur skrifaði upp, höf. ýmsir, hafnaði líka í safni Jóns. Þetta rit er JS 420 4to, 116 bls., skrifað um 1844, bundið í skinn. Þar er eldrit séra Jóns Steingrímssonar og rit- gjörð Þorsteins Magnússonar sýslumanns um „jökulbrunann fyrir austan 1625“, ritgjörð Jóns Salómonssonar um hlaupið úr Mýr- dalsjökli 1660 o. fl. Þá er að geta tveggja handrita, er lentu í vörzlu handritadeildar Bókmenntafélagsins, nú í Landsbókasafni. Hið fyrra er ÍB 169 4to. Kennir þar margra grasa. I handriti þessu eru ýmsar afskriftir, til að mynda „Prédikun um okur“ eftir séra Guðm. Einarsson á Staðastað og „Hugrás“, eftir sama. Ritskrá Lbs. telur, að handriti þessu fylgi Athugagrein eftir Odd í Þúfu. Oddur mun ekki hafa gjört þessa afskrift, heldur eignazt handritið og skrifað við það „athugagrein". Ekki veit ég um hvað hún fjallar, því ég hef ekki séð handritið; hefur verið í láni í Khöfn lengi. - *) Meðal handrita Finns eru drög að ritgjörð á þýzku um Heklugosið, hef- ur e. t. v. átt að birtast í einhverju vísindariti þýzku. Goðasteinn 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.