Goðasteinn - 01.03.1964, Page 66

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 66
Líkfylgdin var hnípin í bragði og söng með trega líksálm, sem Oddný kunni. Brátt fór hún í hvarf við bæjarhúsin. Oddný gekk fyrir eldhúshornið, sem bar á milli hennar og fólksins, en þá var það horfið og söngurinn hljóðnaður. Oddný var þess fullviss, að þetta hefði verið líkfylgd huldufólks á leið í Sebbasteina. Skyggn vinnumaður á Hrútafelli fór einu sinni seint um kvöld upp að Rauðafelli, fjölbýlisjörð. Honum varð að orði, þegar þang- að kom: „Mörg eru ljósin á Rauðafelli, en fleiri eru ljósin á Króki.“ Krókur er örnefni í Rauðafellsheiði, inn við Kaldaklifs- árgil, fagurt land og búsældarlegt en aldrei byggt af mönnum. -o- í Drangshlíð lá huldufólkstrú í landi frá fornu fari. Þar var tvíbýli, og um aldaraðir áttu báðir bæirnir fjós sín niður við drang- inn, sem bærinn dregur nafn af. Aldrei var vakað yfir kú um burð í Drangshlíð. Huldufólkið í drangnum sá nýbærum jafnan borgið um burðinn og vildi þá enga mannaferð í fjósinu. Ábætir og mjólkurskjóla voru sett í gluggatóftina yfir fjósdyrunum, þegar kýr var burðarleg að kvöldi. Huldufólkið tók hvorttveggja til greina, eins og við átti, og gerði nýbærunni og kálfinum allar skyldur. Björn, sonur Jóns Björnssonar hins ríka, og Guðný kona hans bjuggu í Drangshlíð á fyrri hluta 19. aldar. Björn keypti einhvern tíma kú af sveitunga sínurn. Á eðlilegum tíma kenndi hún kálfs- sóttar. Var þá liðið nær vökulokum. Guðný ávarpaði þá tvö hjú sín, vinnumann og vinnukonu, Sigríði að nafni, og sagði: „Ég ætla að biðja ykkur að vaka yfir nýju kúnni, af því ég veit ekki hvernig henni gengur að bera.“ Þau vikust vel undir það. Guðný fékk þeim í hendur kaffiföng til hýrgunar, ef vakan yrði löng. Kýrin var með murningssótt og nokkuð liðið á nótt, þegar vinnu- maðurinn sagði: „Það er alveg óhætt fyrir þig, Sigga mín, að fara heim og hita okkur kaffisopa.“ Hún féllst á það og var góða stund burtu. Henni gefst á að líta þegar í fjósið kom, vinnumaður- inn steinsvaf í moðbásnum, en kýrin var borin og kálfurinn kom- 64 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.