Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 69

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 69
vita, hvert það stefndi og bannaði börnunum að láta illa á Gler- haus og þar í grend. Þau hétu góðu, en gekk verr að muna. Huldukonan kvartaði aftur og konan kom kvörtun hennar með meiri alvöru til barnanna, en vart með meiri árangri en áður. Litlu seinna bar svo til á sunnudagsmorgni á Giljum, að rætt var um kirkjuferð. Gróa vildi óðfús fá að fara til kirkjunnar, en sá hængur var á, að hún átti eftir að reka kýrnar í haga niður á Þverárbakka. Henni var heitið ferðinni, ef hún yrði rösk við rekst- urinn. Gróa var langdrægt komin á leiðarenda, þegar tveir menn, karl og kona, riðu sitt upp að hvorri hlið hennar. Ekki bar hún kennsl á þau, og búningur þeirra var með undarlegum hætti. Karlmaður- inn reiddi upp svipu sína og sagði byrstur við Gróu: „Ég skal slá þig.“ Ekkert varð þó úr högginu, því konan bað Gróu griða og sagði: „Nei, þú gerir það ekki góði minn. Hún gerir það ekki oftar.“ í töluðum orðum riðu þau áfram á spretti, og vissi Gróa ekkert, hvað af þeim varð. Hún var þá miður sín af hræðslu og stökk hágrátandi heim á léið. Móður hennar kom þessi saga ekki á óvart og fannst þetta vel sloppið. Hún sagði við Gróu: „Láttu þér þetta að kenningu verða og sjáðu hann Glerhaus og hólana í friði. Þetta hafa verið hólbúar." Gróu varð atvikið næg áminning og lét huldufólkið í friði þaðan af. -o- Einu sinni voru tvær stúlkur úr Njarðvík að smala kvíám inni á Vogastapa. Sól skein í heiði og var mjög heitt um daginn, svo megn þorsti sótti að stúlkunum. Þær settust niður til að hvíla sig og heyrðu þá, að skekinn var strokkur í berginu undir fótum þeirra. Annarri varð þá að orði: „Mikið vildi ég óska, að til okkar væru komnar strokkvolgar áfir.“ Hin svaraði: „Heldurðu þá, að þú þyrðir að drekka þær?“ Hún hélt það vera. 1 töluðum orðum stóð hjá þeim stór tréausa sneisafull af áfum og væn smérklípa á hvor- um barmi. Stúlkan, sem einskis hafði óskað, drakk til hálfs úr ausunni og borðaði aðra klípuna, en hin snerti hvorugt. Henni heyrðist þá sagt: „Þú skalt ganta einhvern annan en mig næst.“ Goðasteinn 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.