Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 72

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 72
Björn Guðmundsson frá Rauðnefsstöðum: Hafa skepnurnar sál? Líklega þykir ýmsum þessi spurning heimskuleg, þar sem jafn- vel sérfræðingar og fleiri lærðir menn eru efins um, að mennirnir hafi sál. Til er bók, sem heitir Játningar, útg. í Reykjavík 1948. I þessari bók eru 14 ritgerðir eftir jafn marga höfunda og einmitt þá, sem þóttu einna ritfærastir hér á landi eða með þeim beztu. Efni þessarra ritgerða er lífsviðhorf hvers höfundar fyrir sig og þá helzt um annað líf. Þarna kennir margra grasa, og er skemmti- legt að sjá, hvað höfundarnir eru vel að sér í heimssögunni, allt frá því í árdaga. Sumir höfundanna eru einlægir trúmenn á gamla vísu, aðrir eru efagjarnari en viðurkenna þó, að mér skilst, að það hljóti að vera til einhver alheimsstjórnari. Frá mínu sjónarmiði er það heimska að halda því fram, að enginn guð sé til. Þó ber nokkuð á þeirri skoðun, a. m. k. á meðal unglinga og jafnvel hjá sumu eldra fólki. Allir vita, að nauðsynlegt er, þótt ekki séu nema tveir menn saman við verk, að annarhvor sé stjórnandinn, auk heldur þegar margir menn eru saman komnir. Að öðrum kosti fer allt í handa- skolum. Og hvernig má það vera, að öll undrin, sem við sjáum í náttúrunni, og sem ég er ekki maður til að lýsa, séu stjórnlaus? Það er óhjákvæmilegt, að það hlýtur að vera til einhver alheims- stjórnari, sem við köllum guð. En hvernig guð sé, er þýðingar- laust að deila um. Þar standa allir jafn vitvana, jafnt spekingur- inn og sá fáfróði. Má í því sambandi minna á orðin, sem höfð eru eftir Sókrates: „Það sem ég veit, er það, að ég veit ekki neitt.“ Einn höfundanna í áðurnefndri bók getur þess, að hafi menn- irnir sál, sem hann virðist ekki efa, hafi skepnurnar einnig sál. Mér finnst efalaust, að menn og skepnur hafi sál, en hvorttveggja á mismunandi stigi. Það er hægt að stigbreyta orðið sál, t. d. mikill, meiri, mestur, lítill, minni, minnstur. Ég ætla nú að segja 70 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.