Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 81

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 81
við rökkurljósið, sem hjúpar fólk í danssölum, æskublóminn er svo fagur í björtu ljósi. Ég hverf aftur til æsku minnar. Árið 1926 ætlaði ég til Vest- mannaeyja. Það talaðist svo til, að unnusti minn sækti mig, þegar farið yrði, og sú stund rann upp. I stóra pappatösku var ég búin að raða öllum hannyrðum mínum, sparifötum og ýmsum fatnaði. Öðrum farangri kom ég fyrir í poka, sem átti að vega á móti töskunni í flutningi. Ég átti nýtt, brúnt veski með farareyri mínum og lagði það efst í töskuna. Pabbi kom að í því og afhenti mér 70 krónur, sem ég átti geymdar hjá honum. Ég bætti þeim við í veskið og lagði það á sama stað. Pabba varð þá að orði: „Ætlar þú virkilega að hafa þetta í töskunni?“ Ég svaraði: „Ég get hvergi haft það annarsstaðar.“ Veskið var svo stórt, að ekki var hægt að hafa það í vasa nema brjóta það saman til skemmda. Handavinnu mína ætlaði ég að fullgera, eftir því sem mér ynnist tími og efni til. Þar átti ég m. a. þrjú milliverk og voru 12 svanir í hverju. Guðleif Kristjánsdóttir frá Auraseli gaf mér stofninn, borða með tveimur svönum og manna kenndi mér að hekla. Einu sinni sat ég úti hér heima í Mörk og var að hekla. Pabbi gekk þar hjá. Mér varð þá að orði: „ Nú hef ég gert vitleysu, en ætli það sjáist?“ Hann svaraði: „Ef þú sjálf veizt af vitleysu, þá rektu það upp. Guðsaugu sjá allt.“ Oft hafa þessi orð hljóm- að fyrir eyrum mínum síðan. Ferð mín að heiman gekk að óskum upp að Þverá. Það var ekki mikið í henni þennan dag en háar skarir beggja vegna. Við héldum út í vatnið en vorum ekki langt komin, þegar reiðhestur minn fældist. Unnusti minn hafði snör handtök, náði í tauminn og tókst að sefa klárinn. Héldum við svo áfram spölkorn, en þá varð hinn hesturinn hamstola, tók til að prjóna og láta öllum illum látum. Hentist hann eftir straumnum og andartak hvarf mér maður og hestur. Þetta stóð skamma stund, en mér fannst hún löng úti í miðjum álnum. Ég bjóst við, að sama æði kæmi á hest minn, og brugðið gat til beggja vona með, hvort unnusti minn bjargaðist úr voðanum. Allt fór þó betur en áhorfðist, við slupp- um ósködduð til lands. Voru þá tveir menn frá Árkvörn í Fljóts- hlíð komnir til hjálpar. Fórum við heim með þeim og fengum Goðasteinn 79
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.