Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 89

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 89
hans var mikil ágætis kona og faðir hans fyrirmyndarbóndi um snyrtimennsku og reglusemi alla og búskapur þeirra hjóna því til fyrirmyndar, svo að sagt var í nágrenninu, „að þau gengju upp með hverju barni,“ enda báru börnin, er upp komust, uppeldi sínu gott vitni. Næst varð mér starsýnt á kringjur Málfríðar, eða öllu heldur Gunnarsnaut, því líklega hafa þær verið lengur í eigu þeirra Mold- artungufeðga, Gunnars Gunnarssonar og Gunnars Sæmundssonar. Gunnar eldri var Landeyingur, fæddur í Skúmsstaðasókn um 1799.“ Kona í Vestur-Skaftafellssýslu skrifar m. a.: „Því var nú verr, að það féll niður með gamla Grallaranum, að allflestir tækju þátt í kirkjusöngnum .Það er ágætt að hafa góðan kirkjukór, en hitt ætti líka að vera sjálfsagt, að allir kirkjugestir tækju þátt í lof- gjörð og þökk til guðs. Ég man eftir því, meðan ég fór til kirkju, hvað ég þráði að taka undir með söngfólkinu, en þorði það ekki, hélt það myndi spilla söngnum og ef til vill hneyksla náungann. Ég heyrði stundum á tal manna eftir messu og þá kom fyrir, að það gekk út á að gagnrýna sönginn og ræðu prestsins. Þetta held ég, að hefði orðið öðruvísi, ef allir hefðu tekið þátt í messunni eftir vilja og getu. Ég læt útrætt um þetta en þakka ykkur fyrir Goðastein. I honum er margt skemmtilegt og fróðlegt að finna.“ Bjarni Bjarnason rakarameistari í Vestmannaeyjum sendir þessa kveðju: „Kæra þökk fyrir Goðastein. Ég hef verið áskrifandi að ritinu frá byrjun og er ánægður með það að öðru leyti en því, að mér þykir það koma of sjaldan út. í síðasta hefti óskið þið útgefendur eftir umsögn lesenda um stækkun, og er því til að svara frá mér, að ég óskaði helzt, að þið sæjuð ykkur fært að gefa það út mánaðarlega. Með kærri kveðju og beztu óskum.“ fúlíus Daníelsson bóndi og oddviti í Syðra-Garðshorni, Svarf- aðardal, skrifar: „Beztu þakkir fyrir „Goðastein“. Þetta er mjög hugþekkt tímarit, og það fylgja því góð áhrif. Það flytur mér hlýj- an blæ frá því góða fólki sunnan jökla, þar sem ég dvaldist og starfaði í þrjá vetur. Mun þetta ekki vera eina prentaða tíma- ritið, sem er gefið út í sveit á íslandi? Heiður og þökk ykkur Þórði fyrir framtak ykkar. Mér er sönn ánægja að gerast áskrif- andi. Efnið er fjölbreytt innan síns ramma, og dráttlistarhæfileik- Goðasteinn 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.