Goðasteinn - 01.09.1969, Síða 27
Dýrtíð var mikil vegna stríðsins og ströng skömmtun á korn-
mat og fleski. Af þessu leiddi, að matur var í knappasta lagi og
hálfgerður sultur, þcgar mikið var unnið, því að þá þurfti meiri
mat. Úr þessu raknaði, þegar epli og perur fóru að þroskast seinni
hluta júlímánaðar. Var það í rauninni talið sjálfsagt að ná sér
í epli, þegar þau urðu æt, og vitanlcga var þeim stolið í trjágarði
búsins. 1 orði kvcðnu var þetta þó bannað, en sulturinn knúði
flesta til að verða sér úti um björgina. Til málamynda var þó
tekið hart á eplaþjófnaði, en mér fannst að andinn í strákunum
væri þannig, að þetta gerði ekkert til, því að af nógu væri að
taka. Á búinu var fjórtán hektara trjágarður og þar voru þús-
undir cpla- og perutrjáa auk annarra ávaxta. Minnist ég þess,
að um haustið í október, þegar uppskeruhátíðin var haldin, var
öllum hcimilt að fara um trjágarðinn. Mátti þar þá sjá miklar
skemmdir, því að í kringum flest ávaxtatrén voru hrúgur af
grotnuðum eplum og perum.
Eftir uppskeruhátíðina síðast í október, kvaddi ég Gunnar-
slevholm og fór á Tunc búnaðarskólann á Sjálandi. Þar voru
haldin 6 og 9 mánaða námskeið, cg valdi ég það síðarnefnda.
Ég hafði þá verið eitt ár við verklegt búnaðarnám í Danmörku og
vildi því gjarna afla mér bóklegrar fræðslu á þessu sviði. Hinn i.
nóvember byrjaði ég í skólanum. Fjárhagur minn var þá svo góð-
ur, að ég gat auðveldlega staðið undir kostnaði við þetta níu
mánaða nám.
Dvölin á Tune varð mér til mikilla nota. Þar kynntist ég betur
landbúnaði Dana, en ég hafði áður átt kost á, meðan aðeins var
um tiltölulega einföld verkleg störf að ræða. Þarna voru ágætir
kennarar og vel að sér í þeim greinum, sem þeir kenndu. Skóla-
stjóri var N. Bredker, nýtekinn við embætti. Einnig var þar fyrr-
verandi skólastjóri, Brink Larsen að nafni. Kenndi hann einkum
búfjárræktargreinar og þá mest um dönsku kúakynin. Bredker
kenndi fóðurfræði, eftirlitsstörf með nautgriparækt, fitumælingar
og skýrsluhald. Otto Christensen, gamall kennari, fræddi okkur
um búnaðarsögu og um nytjajurtir Danmerkur, einnig eðlisfræði.
Aagaard kenndi efnafræði og Hegsbro Holm jarðvegsfræði, á-
burðarfræði, skipulag jarðræktar og um sáðskipti. Allt var þetta
Goðnsteinn
25