Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 43
Hann andaðist tæpri viku síðar, hinn 22. nóvember, 87 ára, cn
Kristín lifði til 7. maí 1957, og varð nærri 83 ára.
Austur var nú haldið eftir góða viðdvöl og stanzað allvíða,
því að vörum þurfti að skiia. Að Drangshlíð var svo komið
klukkan hálf sjö um kvöldið í niðamyrkri. Loksins var þá komið
í áfangastað, en auðvitað allt í óreiðu. Beið næstu daga að koma
öllu fyrir. Ég var ekki kominn austur undir Fjöll til að liggja á
meltunni, hcldur til að uppfræða börn. Strax daginn eftir, mið-
vikudaginn 18. nóv., kallaði ég þau börn saman til viðtals í Skarðs-
hlíð, er ég hugðist hafa í cldri dcild. Afhenti ég þcim bækur, setti
þeim fyrir, vó og mældi, og kom þcim af stað við námið. Alls
urðu 16 börn í þessari deild í þremur aldursflokkum. Eftir að
hafa talað við börnin, skrifaði ég í dagbók mína: ,,Mér lízt vel
á börnin. Annars mun ég láta álit mitt í Ijós á þeim um helgina,
cr ég hcfi kannað báðar deildir einn dag. Reynslan er ólygnust,
segir Helgi Elíasson."
Daginn eftir kallaði ég yngri börnin saman og mættu 14 af 17,
scm síöar urðu í deildinni. Þá hafði ég kynnzt börnunum t sjón.
Hófst nú kennslan. Ekki var hægt að hefja kcnnslu á morgnana
fyrr cn klukkan 10 í skammdeginu, sökum ljósleysis, en rafmagn
var ekki tiltækt, eins og fyrr segir. Kennslu hagaði ég þannig,
að deildirnar komu annan hvorn dag t skólann. Börnunum var
ckið úr tvcimur áttum, að austan og vestan, cn þau börn, scm
næst bjuggu skólanum, gengu að hciman og heim. Að vestan ók
Sigurbergur Magnússon bóndi í Steinum, cn að austan Árni bú-
stjóri Jónasson í Skógum. Frá hans heimili voru tvcir drengir,
synir hans, u og 12 ára gamlir, frábærir námsmenn, og ekki hefur
áframhaldið orðið lakara. Þeir stunda nú báðir háskólanám.
Börnin höfðu með sér nesti í skólann og ég sömuleiðis. Borð-
uðum við nestið inni í skólastofunni í hádcginu, cn fríið hafði
ég aðcins 20 mínútur. Voru börnin fljót að ljúka við nestið sitt
og fóru orðalaust út til leika á túninu þarna rétt hjá. Veður mátti
tcljast slæmt, cf þau fóru ekki út.
Auðvitað var námsgeta barnanna misjöfn, en vilji yfirleitt fyrir
hcndi til að fræðast. Og þægari börn hef ég aldrei umgengizt í
skóla, og hef ég þó kcnnt hátt á annan áratug. Það var beinlínis
Goðastei/w
41