Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 8
loftköstum ofan tún, yfir girðinguna og í Lónið og sáust svo
ekki meir.
Mikið hlakkaði ég til jólanna. Á Þorláksmessu var hangikjötið
brytjað til jólanna. Ég passaði mig að vera þar nálægur og fékk
þá væna sneið af hráu hangikjöti. Það var vel reykt, rautt í sárið
og bragðaðist vel. Það var eldað á Þorláksmessu.
Vel man ég, hvað skammtað var á aðfangadagskvöld, það
voru súr svið, ostur, brauð og smjör og rúsínugrautur, aldrei kjöt,
fyrr en á jóladag. Alltaf voru bökuð pottbrauð fyrir jólin. Höfð
var góð glóð í hlóðunum og járnplata ofan á. Brauðið var látið
ofan á plötuna og potti hvolft yfir. Vel var þess gætt að hafa glóð-
ina ekki meiri en svo, að brauðin bökuðust með sem minnstri
skorpu. Eftir matinn á aðfangadagskvöld var lesinn húslestur og
sunginn jólasálmur, síðan drukkið kaffi. Þá voru ekki til margar
tegundir af kaffibrauði, aðeins kieinur, pönnukökur og jólabrauð.
Spil voru ekki snert um kvöldið. Ljós var látið loga á jólanótt og
nýársnótt. Mér fannst vera helgiblær yfir öllu á þessari miklu
skammdegishátíð.
Aldrei var brauð með kaffi nema á hátíðum og tyllidögum.
Matur var þrisvar á dag og alltaf morgunkaffi og hádegiskaffi.
í skammdeginu var borðað tvisvar á dag. Þá borðaði hver af
sínum diski og með vasahnífi, að gömlum og góðum sið. Til voru
hnífapör, sem notuð voru, þegar heldri menn gistu. Þetta breyttist
1912, þá var farið að borða tvisvar á dag, og kunni ég ekki vel
við þá breytingu. Þetta átti að verða ódýrara en varð dýrara.
Mikið vandaverk var að fela eldinn en tókst þó oftast vel.
Aska var látin ofan á góða glóð og hella ofan á. Öllu sauðataði
var brennt. Fór oft mikil vinna í það á vorin að hirða um það
ef illa gekk með þurrk. Nú er sú vinna lögð niður. Ekki þarf
heldur að leggja vinnu í það á heimilinu að þvo og þurrka ullina
og gera það svo vel, að hún sé söluhæf. Hugstæð er mér ein koma
mín heim úr kaupstað úr ullarferðinni. Þá hafði ég keypt mér
einfalda harmóniku fyrir 10 krónur. Ég kom heim kl. 3 að nóttu,
tók ofan af hestunum, fór með þá í haga og síðan lagði ég lcið
mína upp í smiðju að revna hijóðin í harmónikunni. Engu náði
ég þá laginu og fór svo að sofa ánægður yfir því að hafa eignast
6
Goðasteinn