Úrval - 01.03.1978, Side 35

Úrval - 01.03.1978, Side 35
HÚN GRACIE OKKAR 33 eftir stöppu á borðinu og flýta sér svo út, jafn laumulega. Ef til þeirra sást, urðu þeir vandræðalegir og tautuðu eitthvað á þessa leið: Hvað, þessi and- skotans hnúta? Mér er sama hvort ég gef þér eða kettinum hana. ’ ’ Upphafið Gracie var fædd Grace Stansfíeld 9. janúar 1898, og þegar í stað gaf hún sýnishorn af þeirri þróttmiklu rödd, sem síðar þurfti ekki magnara til að fylla stærstu leikhús. Gríðarrödd hennar var nágrönnunum ekkert fagnaðarefni, en Jenny, móðir hennar, kunni vel að meta hana. Jenny var þá 19 ára að aldri, spuna- stúlka sem sjálfa hafði langað mikið til að verða leikkona. Og áður en langt um leið voru komnir þrír litlir Stansfíeldar í viðbót: Betty, Edith og Tommy. Móðir þeirra hvatti þá alla til að syngja — því hærra því betra. Grace hóf söngferil sinn á góðgerðatónleikum og fékk gjarnan grísastöppu að launum. Þaðan lá leiðin 1 ferðalög með skemmtiflokki. Þegarþví lauk, varð hin tíu ára gamla Grace skólastúlka síðdegis, en á hverjum morgni, frá klukkan sex, spann hún bómull í verksmiðju. Þar kom að hún gekk t ferða-revíu- klúbb sem ,,Gracie Field,” móðir hennar taldi það nafn myndu fara betur á stórum ljósaskiltum. Archie Pitt, aðal gamanleikari hópsins, skynjaði í þessari hávöxnu, klunna- legu 16 ára gömlu stúlku hæfileika, lífsþrótt og hlýju, ásamt einhverju óskýranlegu, sem gerði hana sérstæða, eins og sérstöku ljósi væri beint að henni einni, jafnvel þótt hún væri aukaatriði í stórum hópi á .sviðinu. Næstu níu ár þjálfaði hann hana, æfði og stjórnaði til að verða stjarna. ,,Hann varenginn Svengali,” segir Gracie í sjálfsævisögu sinni. ,,En hann var ágæt eftirlíking.” Þegar hún var 25 ára, aðalleikkonan í hópi hans, en ennþá barnaleg og leiðitöm, gekk hann að eiga hana. Síðan pantaði Sir Oswald Stoll nýjustu revíu Archies, Mr. Tower of London, sem systkini Gracie, Betty .Edith og Tommy tóku nú þátt í auk hennar, til að koma fram í eina viku á Alhambra í London. Þetta sló svo glæsilega í gegn, að leikarinn og leikhússtjórinn Sir Gerald du Maurier bauð Gracie aðalhlutverkið í SOS í St. James leikhúsinu. Gracie var hikandi. ,,Ég held ekki að ég geti talað svona iengi.” En henni tókst það. Á hverju kvöldi flýtti hún sér frá St. James þar sem hún hafí flOO á viku til að koma fram í Alhambra fyrir f200, síðan í lágnættis- kabarett í Café Royal fyrir f 300. Á daginn söng hún inn á hljómplötur. Fjölskyldan naut þessa nýfengnu auðæva. Gracie keypti hús handa foreldrum sínum í Peacehaven í austur-Sussex, og þegar þeim þótti það of afskekkt, keyti hún annað nær Brighton, en gaf leikkvennasambandi fyrra húsið. Það setti upp heimili og uppeldisstofnun fyrir leikarabörn í húsinu og gaf því nafn Gracie Fields.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.