Úrval - 01.03.1978, Side 74

Úrval - 01.03.1978, Side 74
72 ÚRVAL ráðgerðum að vera komin þangað í tæka tíð. En svona rétt til að hafa allt á hreinu, spurði ég hjúkrunar- konuna, sem stjórnaði upprifjunar- námskeiðinu fyrir Lamaze-aðferðina: ,,Hvað á maður að gera, ef barnið fæðist áður en móðirin kemst á sjúkrahúsið?” Hjúkrunarkonan svaraði kurteislega en stuttaralega, og það var ekki á henni að sjá, að henni þætti þetta góð spurning. En við lögðum orð hennar á minnið. Meira en mánuði áður en Sharon átti von á sér settum við bunka af dagblöðum, skóreim (til að hnýta á nafla- strenginn) og glerpípu (til að hreinsa slím úr munni og nefi) út í bílinn. 24. janúar— dagurinn sem barnið átti að fæðast — var ósköp venjulegur dagur. Nokkrum dögum fyrr hafði Sharop fengið fyrirvara hríðir, en ekkert gerðist. 26. janúar, mánudagur, var sá dagur er hún átti að fara í mæðraskoðunina, og um morguninn hélt hún einu sinni enn' að nú væri hún að fara af stað. Skelfing var það heppilegt, hugsuðum við. Við höfðum þegar skipulagt ferðina, fengið konu til að' líta eftir börnunum, Miriam, þriggja ára, og Timothy, 19 mánaða. En það varð ekkert úr þessu. Læknirinn sagði: ,,Þú getur þurft að snúa við eftir þrjá tíma og koma aftur, — en það getur allt eins verið að við hitt- umst hér í eftirlitinu eftir viku. Það er engin ástæða enn til að framkalla fæðingu.” Við minntum hann á hve langt við áttum heim, og fengum þessi fleygu orð til svars: ,,Jú, en ég hef aidrei kynnst konu sem ekki hefur komist á spítalann í tæka tíð. ” Og þannig leið vikan. Fimmtudag- inn 29. kom ég heim til að gleypa 1 mig kvöldmatinn, áður en ég fór á fund. Ég tók eftir því að það var minna en fjórðungur eftir af bensíni á bílnum, en ákvað að það væri nóg að taka bensín morguninn eftir. En morgunninn kom einkar snemma þennan föstudag, 30. janúar. Sharon fór fyrir alvöru að hafa hríðir klukkan hálf fjögur. Læknirinn hafði sagt okkur að leggja af stað til spítalans þegar reglulegar hríðir hefðu staðið í klukkustund með átta til tíu mínútna millibili. Klukkan 4.10 vaknaði ég við að Sharon reikaði um gólfið með harðar hríðir. Tíu mínútum seinna var ég klæddur og búinn að hringja í spltalann og segja að við værum að koma. Þá hringdi Sharon í vinkonu sína, sem hafði boðist til að vera hjá Miriam og Timothy. Smáborgin Nokomis var enn sofandi og engin bensínstöð hafði opnað, þegar við lögðum af stað klukkan4.35. Nálin á bensímælinum var komin æði langt til vinstri, en ég minntist ekki á það við Sharon. Nú var um að gera að komast fljótt til Springfield. Hraðamælirinn komst fljótt upp í 145, en því hraðar sem ég ók, því lengri virtist ferðin verða, og hríðirnar urðu æ ákafari. Bilið milli þeirra styttist fyrst niður í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.