Úrval - 01.04.1978, Page 66

Úrval - 01.04.1978, Page 66
64 URVAL skartklæðum, af fyllsta yndisþokka. Flóakragar, flókar úr feldi og fjöðr- um, voru notaðir til að veiða flærnar í. Allt var þetta vel þekkt meðal yfir- stétta miðalda. Þegar kragagildrurnar urðu fullar af flóm tóku þjónarnir við þeim, fóru með þá út fyrir og dust- uðu flærnar úr. Leifar af þessum fornu flóakrögum má enn sjá þegar fólk vill vera virkilega fínt. Þá krækir það um hálsinn dauðum, stareygðum minkum og refum. Heilbrigðisyfírvöld nú til dags mæla með tvíþættum ráðstöfunum í baráttunni við flærnar. Annars vegar eigum við að reyna að gera hýbýli okkar svo fjandsamleg flóm, sem verða má. Fyrst og fremst á að bursta og berja burtu allt ryk, ryksuga, sópa og hrista til þess að eyðileggja sem allra mest af eggjum, lirfum og púp- um. Bæli gæludýranna á að hreinsa vandlega í hverri viku, og ef ástæða þykir til, á að úða eða strá með skor- dýraeitri. Annað skrefíð er svo að láta til skar- ar skríða gegn fullorðnu flónni. Hægt er að fá alls lags úða, púður og sápu, sem nota skai á húsdýrin til að verja þau fyrir flóm. Einnig er til nútíma flóakragi fyrir húsdýr með skordýra- eitri. En á öllum tímum hafa viðskipti manna og flóa verið gagnkvæmt stríð. Það má því heita furðulegt, að mað- urinn hefur iðulega skemmt sér við flóna. Þar til fyrir fáum árum voru flóasýningar, þar sem flærnar léku listir sínar, vinsælar á samkomum. Þar mátti sjá flær með örsmá aktygi draga agnarlitla vagna eða dansa vals saman tvær og tvær, eða heyja einvígi með tveimur sverðum, því það er svo að sjá, sem með iðni og eljusemi megi kenna flóm æði margt. Flær hafa líka orðið skáldum, heimspekingum og rithöfundum ær- ið umhugsunarefni. Shakespeare og Alexander Pope hafa meðal annarra skrifað margt um flær, aðallega til þess að sýna fram á, að maðurinn sé ekki svo merkilegur sem hann heldur — þegar öllu er á botninn hvolft er hann er ekki annað en skjóttekinn málsverður fyrir pöddur. Og ef maður veltir málinu fyrir sér með viðeigandi hugarfari, er ekki frá- leitt að hugsa sér að flærnar séu ein- hver þau gáfuðustu og tryggustu kvikindi, sem hægt er að deila með húsi, gæludýri eða gólfmottu. Þær hafa svo sannarlega sýnt okkur, svo ekki verður um villst, að þær kunna að meta okkur eins og við erum. ★ ÞYKKT JARÐ SKORPUNNAR Þar sem jarðskorpan er þykkust, undir Himalayafjöllum, er hún 80 kílómetrar að þykkt. Þetta hefur komið fram við sameiginlegar rann- sóknir, sem gerðar eru af Sovétríkjunum, Indlandi, Italíu og Pakist- an. Skurður, sem er 100 kílómetrar að lengd var sprengdur í jarð- skorpuna til að rannsaka þykkt hennar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.