Úrval - 01.04.1978, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
borginni. Shaffer var tveimur
mánuðum á eftir honum.
Shaffer flaug til Los Angeles. Hann
rannsakaði hvert einasta bygginga-
fyrirtæki í Los Angeles — 150 talsins.
Enginn hafði nokkrun tíma heyrt
Bradford Bishop eða James A.
Wilson nefnda. Hann leitaði til sam-
bands byggingaverktaka og spurði
síðan alla bréfbera borgarinnar út úr.
Þetta reyndist alger blindgata.
Nú leitaði Lyman Shaffer aðstoðar
skrifstofu sinnar og með aðstoð
hennar var dregin upp skrá yfir alla
þá sem vitað var til að þekktu til
Bradfords Bishop. Þegar heimilisföng
þeirra, 25 talsins, höfðu fundist, var
hafist handa með að spyrja þetta fólk
um ferðir Bishops. 15. maí var eitt
spor fundið. Shaffer hafði haft uppi á
manni, sem seldi Bishop bíl í janúar.
Shaffer lýsti eftir bílnum um alla
Kaliforníu. Hann fékk svarið innan
klukkustundar. Lögreglan í Santa
Monica gaf þær upplýsingar, að bíll-
inn hefði fundist yfirgefínn þann 25.
mars.
Næsta dag voru hafín málaferli á
hendur fjórum Zebra-sakborningum
í San Fransisco, með alls 12 ákærum,
þar á meðal fyrir morð og mannrán.
Réttarhöldin voru upprunalega
dagsett 8. júlí. Nú var knúið á fast
um að rekja slóð Berettunnar. Sak-
sóknarararnir sáu sem var, að
Berettan var langsamlega mikilvæg-
asta sönnunargagnið í réttarhöldun-
um. Niðurstaða kviðdómsins gat
meira en vel verið undir því komin,
hvort hægt væri að rekja slóð Berett-
unnar til sakborninganna.
En menn ATF fundu ekki fleiri
spor. Shaffer lýsti eftir Bishop á
öllum lögreglustöðvum á Los
Angelessvæðinu. Þegar ekkert svar
hafði borist 11. júní, ákvað hann að
leita til fjölmiðlanna um hjálp.
Vegna reglu um takmarkaða
auglýsingastarfsemi, sem á sér stoð í
landslögum, gat hann ekki sagt þeim
að mannsins, sem hann viidi fá lýst
eftir, væri leitað í sambandi við
Zebraveiðarnar. Aðeins ein útvarps-
stöð,. ABC, samþykkti að sýna mynd
af Bishop í sjónvarpi sínu, 12. júní.
Tveim dögum seinna hringdi
móðir Bishops — sem óttaðist auglýs-
ingar af þessu tagi — til lögregl-
unnar í San Fransisco og gaf upp
nöfn á þó nokkrum hópi, sem gæti
vitað hvar sonur hennar væri niður-
kominn. Sá hópur var leitaður uppi
strax sama morguninn. Kona nokkur
upplýsti, að Bishop hefði farið til
Hawaii með félaga sínum og kynni að
vera á KFUM gistiheimili í Honolulu.
AFT senri sér þegar í stað til
lögreglunnar í Honolulu og bað um
aðstoð við að kyrrsetja Bishop. Það
var ekki fyrr en 8. júlí að lögreglan í
Honolulu sendi svarskeyti til megin-
landsins. Hún hafði komist að því
hvar Bishop kynni að halda sig, en
veigraði sér við að grípa hann án
handtökuheimildar. Shaffer útvegaði
hana daginn eftir, og 10. júlt hélt
hann til Hawaii.