Úrval - 01.04.1978, Page 70

Úrval - 01.04.1978, Page 70
68 ÚR VAL notaði hann hendurnar, og þessi þokkafullu, talandi ,,hljóðfæri” urðu fljótt einkenni hans, ásamt djúpblá- um augum og ljósu hárinu. Árið 1912, þegar hann var þrítugur, tók hann að sér Fíladelfíuhljómsveit- ina, sem þá var miðlungsgóð, og inn- an tíu ára hafði hann gert hana að einni stærstu hljómsveit allra tima. Mikið hefur verið ritað og bollalagt um Hæfileika Stokowski til að ná fram hjá hljómsveitum þessum safaríka tón, fullum af eldmóði og orku. I hreinskilni sagt held ég að of mikið hafí verið rætt um þetta atriði. Það er hægt að skýra hæfileika Stokowski með einföldu orði: snillingur. Eitt sinn er hann var að æfa „Vorblótið”, eftir Stravinsky, stöðvaði hann hljóm- sveitina I spennandi kafla og sagði: ,,Ég heyrði ekki í fjórðu básúnu.” Hann hafði rétt fyrir sér; nóturnar fyrir fjórðu básúnu höfðu gleymst svo hún lét sér nægja að spila eins og sú þriðja. ÆVINTÝRAMAÐUR Frá því Leopold var 12 ára bjuggum við í sömu íbúðalengjunni. Verandir íbúðanna lágu saman og við rædd- umst oft við. Það var ekki auðvelt að umgangast hann, en það þýðir ekki sama og að hann hafí verið kulda- lcgur. Hann hafði einfaldlega ekki áhuga á kjaftasögum. Hann vildi tala um flutning verka, höfunda þeirra, listamenn og hljómsveitir. Eitt sinn er við vorum að ræða um snilli ákveðins verks, sagði hann: ,,Þú veist að mikil list er lifandi í sjálfu sér.” Vissulega samræmdist líf hans þessari kenningu. Leopold hafði áhuga á öllu, frá stjórnmálum upp í rafeindafræði. Hann var ævintýra- maður í sínu einkalífi, óseðjandi for- vitinn og fús að reyna nýja hluti. Á þeim ríma þegar áheyrendur væntu sér aðeins sígildra tónverka Bachs, Mozarts, Beethovens og ann- arra meistara, hélt Stokowski fram verkum samtímamanna. ,,Vani,” sagði hann, ,,vegna leti.” Það eru fast að því hundrað svokölluð viðbót- arverk, sem Stokowski frumflutti fyrir ameríska áheyrendur. Það frum- herjastarf gerði hann að einum um- deildasta og mest spennandi persónu tónlistarheimsins. Áheyrendur Leopolds voru ekki alltaf þakklátir fyrir framlag hans. 1919 flutti hann í Fíladelfíu ,,Hrifn- ingaróð”, eftir Scriabin, þá risu margir áheyrenda á fætur og gengu út. 1922 leyfði hann Ameríkönum að heyra „Vorblótið”. Hann hafði snemma byrjað á því að tala beint við áheyrendur og áður en flutningurinn hófst sagði hann: ,,I hreinskilni sagt á ég ekki von á að þið verðið hrifín af þessu í fyrsta skipti.” Hann hafði rétt fyrir sér. Áhugi vinar míns á nýjum verkum var álíka mikill og þörf hans fyrir ungt fólk. Snemma á 20. öldinni var hann fyrsti frægi stjórnandinn sem hélt reglulega hljómleika fyrir börn undir tólf ára aldri. Þau elskuðu frjálslega framkomu hans og kfmni-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.